Fredag 7 November | 04:26:28 Europe / Stockholm
2025-03-04 15:45:34

Aðalfundur SKEL fjárfestingafélags hf. verður haldinn þann 6. mars 2025 kl. 16:00 í Ballroom salnum í Reykjavík Edition, Austurbakka 2, 101 Reykjavík.

Framboðsfrestur til stjórnar er runninn út. Eftirtaldir aðilar hafa gefið kost á sér í stjórn félagsins:

  • Birna Einarsdóttir
  • Birna Ósk Einarsdóttir
  • Guðni Rafn Eiríksson
  • Jón Ásgeir Jóhannesson
  • Sigurður Ásgeir Bollason

Nánari upplýsingar um frambjóðendur og tillögu tilnefninganefndar er að finna í viðhengi og á heimasíðu SKEL: https://skel.is/hluthafar/hluthafafundir-skel

Framboðsfrestur til setu í tilnefningarnefnd félagsins er einnig runninn út. Eftirfarandi einstaklingar eru í framboði til tilnefningarnefndar:

  • Almar Þór Möller
  • Álfheiður Eva Óladóttir

Samkvæmt starfsreglum tilnefningarnefndar skal hluthafafundur kjósa tvo nefndarmenn en nýkjörin stjórn félagsins skipar einn úr stjórn í nefndina í kjölfar aðalfundar. Almar og Álfheiður verða því sjálfkjörin til setu í nefndinni.

Öll fundargögn má finna á heimasíðu félagsins: https://skel.is/hluthafar/hluthafafundir-skel

Hluthafar og umboðsmenn geta skráð sig á aðalfundinn á fundarstað frá kl. 15:00 á fundardegi. Til að auðvelda skráningu hvetjum við hluthafa til að forskrá sig eða umboðsmann sinn með því að senda nafn, kennitölu og eftir atvikum útfyllt umboðseyðublað á fjarfestar@skel.is fyrir kl. 14:00 á fundardegi. 

Nánari upplýsingar veitir Ásgeir Helgi Reykfjörð Gylfason, forstjóri, fjarfestar@skel.is