Onsdag 15 Juli | 22:44:29 Europe / Stockholm
Est. tid*
2026-03-18 - X-dag ordinarie utdelning SKAGI 0.40 ISK
2025-03-28 - X-dag ordinarie utdelning SKAGI 0.26 ISK
2025-03-27 - Årsstämma
2025-02-26 - Bokslutskommuniké 2024
2024-11-27 - Kvartalsrapport 2024-Q3
2024-08-29 - Kvartalsrapport 2024-Q2
2024-05-30 - Kvartalsrapport 2024-Q1
2024-03-22 - X-dag ordinarie utdelning SKAGI 0.52 ISK
2024-03-21 - Årsstämma
2024-02-22 - Bokslutskommuniké 2023
2023-10-19 - Kvartalsrapport 2023-Q3
2023-08-17 - Kvartalsrapport 2023-Q2
2023-05-05 - Kvartalsrapport 2023-Q1
2023-03-16 - Årsstämma
2023-02-23 - Bokslutskommuniké 2022
2022-10-20 - Kvartalsrapport 2022-Q3
2022-08-18 - Kvartalsrapport 2022-Q2
2022-05-06 - Kvartalsrapport 2022-Q1
2022-03-17 - Årsstämma
2022-02-24 - Bokslutskommuniké 2021
2021-10-21 - Kvartalsrapport 2021-Q3
2021-08-19 - Kvartalsrapport 2021-Q2
2021-04-30 - Kvartalsrapport 2021-Q1
2021-03-19 - Årsstämma
2021-02-25 - Bokslutskommuniké 2020
2020-10-22 - Kvartalsrapport 2020-Q3
2020-08-20 - Kvartalsrapport 2020-Q2
2020-04-30 - Kvartalsrapport 2020-Q1
2020-03-19 - Årsstämma
2020-02-27 - Bokslutskommuniké 2019
2019-10-23 - Kvartalsrapport 2019-Q3
2019-08-21 - Kvartalsrapport 2019-Q2
2019-05-02 - Kvartalsrapport 2019-Q1
2019-03-21 - X-dag ordinarie utdelning SKAGI 1.07 ISK
2019-03-20 - Årsstämma
2019-02-27 - Bokslutskommuniké 2018
2018-08-22 - Kvartalsrapport 2018-Q2
2018-03-22 - Årsstämma
2018-02-28 - Bokslutskommuniké 2017
2016-03-17 - X-dag ordinarie utdelning SKAGI 2.17 ISK
LandIsland
ListaMid Cap Iceland
SektorFinans
IndustriFörsäkring
Skagi är ett försäkringsbolag. Bolaget erbjuder ett varierande utbud av försäkringslösningar inriktat mot person-, hem - och reseförsäkring. Utöver erbjuds försäkring för fordon samt olika lösningar för företag. Kunderna återfinns huvudsakligen bland företagskunder inom varierande branscher, inkluderat industri, jordbruk, hälsa och sjukvård, samt finans. Störst verksamhet återfinns på den isländska marknaden.

All ägardata du vill ha finns i Holdings!

SKAGI: Uppgjör Skaga á 2. ársfjórðungi 2026

2026-07-15 17:46:51

15. júlí 2026

Tryggingarekstur áfram sterkur

Erfitt árferði á mörkuðum litar afkomu af fjármálastarfsemi og fjárfestingum

Afkoma 2F og 1H 2026 hjá samstæðu Skaga hf.

Helstu lykiltölur 2F 2026

Samstæðan

  • Hagnaður samstæðu fyrir skatta nam 1.037 m.kr. (2F 2025: 1.267 m.kr.) og eftir skatta nam hagnaður ársfjórðungsins 731 m.kr. (2F 2025: 972 m.kr.).
  • Hagnaður af grunnrekstri fyrir skatta nam 1.181 m.kr. (2F 2025: 1.330 m.kr.).
  • Hagnaður á hlut nam 0,39 kr. á ársfjórðungnum (2F 2025: 0,51 kr.).
  • Arðsemi eigin fjár er 12,9% á ársgrundvelli (2F 2025: 18,4%) og gjaldþol samstæðu var 1,3 í lok tímabilsins (2F 2025: 1,28).
  • Eigið fé samstæðu nam 22.558 m.kr. við lok tímabilsins.

Tryggingastarfsemi

  • Vöxtur tekna af vátryggingarsamningum var 7,3% og afkoma vátryggingarsamninga nam 1.446 m.kr. (2F 2025: vöxtur 8,9% og afkoma 1.499 m.kr.).
  • Kostnaðarhlutfall í tryggingastarfsemi var 18,0% (2F 2025: 18,4%).
  • Samsett hlutfall var 82,8% (2F 2025: 80,9%).

Fjármálastarfsemi

  • Hreinar tekjur af fjármálastarfsemi námu 666 m.kr. (2F 2025: 732 m.kr.) sem er 9% samdráttur á milli ára, en afkoma af fjármálastarfsemi var neikvæð um 95 m.kr. fyrir skatta (2F 2025: 6 m.kr.).
  • Eignir í stýringu (e. AuM) stóðu í 251 ma.kr. við lok tímabilsins og var óbreytt á milli ársfjórðunga.

Fjárfestingar

  • Fjárfestingartekjur námu 396 m.kr. (2F 2025: 509 m.kr.) sem samsvarar 0,8% ávöxtun.
  • Hreinar tekjur af fjárfestingum voru neikvæðar um 144 m.kr. (2F 2025: -63 m.kr.).

Helstu lykiltölur 1H 2026

  • Hagnaður samstæðu fyrir skatta nam 704 m.kr. (1H 2025: -104 m.kr.) og eftir skatta nam hagnaður fyrri árshelmings 395 m.kr. (1H 2025: -380 m.kr.).
  • Hagnaður af grunnrekstri fyrir skatta nam 1.100 m.kr. (1H 2025: 1.046 m.kr.).
  • Vöxtur tekna af vátryggingarsamningum nam 7,1% og afkoma af vátryggingarsamningum nam 1.584 m.kr. (1H 2025: 1.449 m.kr.) sem samsvarar 135 m.kr. afkomubata á milli ára.
  • Kostnaðarhlutfall í tryggingastarfsemi var 18,5% (1H 2025: 18,8%).
  • Samsett hlutfall var 90,4% (1H 2025: 90,6%).
  • Hreinar tekjur af fjármálastarfsemi námu 1.380 m.kr. (1H 2025: 1.512 m.kr.) og lækkuðu um 9% á milli ára.
  • Fjárfestingartekjur námu 762 m.kr. (1H 2025: -13 m.kr.) en hreinar fjárfestingartekjur voru neikvæðar um 396 m.kr. (1H 2025: -1.150 m.kr.).

Haraldur I. Þórðarson, forstjóri:

„Rekstur samstæðunnar á öðrum ársfjórðungi einkenndist af góðum árangri í bland við áskoranir. Afkoma af grunnrekstri dróst lítillega saman frá fyrra ári þrátt fyrir áframhaldandi góðan takt í tryggingastarfseminni þar sem neikvæð afkoma af fjármálastarfseminni á tímabilinu vó þar á móti. Á ársfjórðungnum komu skipulagsbreytingar til framkvæmda í kjölfar stefnurýni félagsins, þar sem áhersla er lögð á einföldun og kostnaðarhagræði. Hagræðingaraðgerðir þeim tengdar höfðu í för með sér nokkurn kostnað sem gjaldfærður var að fullu á tímabilinu. Horft fram á veginn skila þessar aðgerðir sér í lægri kostnaði sem nemur um 300 m.kr. á ársgrundvelli og leggja grunn að auknu hagræði af rekstri samstæðunnar. Afkoma fjárfestinga var undir markmiðum og viðmiði á ársfjórðungnum sem skýrist að mestu af neikvæðri ávöxtun bæði skráðra og óskráðra hlutabréfa.

Afkoma af tryggingastarfsemi var áfram sterk á öðrum ársfjórðungi og á fyrri helming ársins var samsett hlutfall það lægsta síðan árið 2007. Þessi árangur endurspeglar öflugan undirliggjandi rekstur, góðan og arðbæran iðgjaldavöxt og markvissa áherslu á rekstrahagkvæmni. Þá voru einnig jákvæðar matsbreytingar vegna hagstæðrar þróunar fyrri ára. Horfur félagsins hafa verið uppfærðar í kjölfar betri þróunar en áður var gert ráð fyrir. Tekjuvöxtur hefur verið kröftugur síðustu ár og hefur viðskiptavinum VÍS fjölgað jafnt og þétt. Þá hafa allir helstu þjónustu- og ánægjumælikvarðar þróast í rétta átt en VÍS leggur ríka áherslu á framúrskarandi þjónustu og að styrkja enn frekar tengslin við viðskiptavini um allt land. Þessi árangur staðfestir enn og aftur að sú stefna sem félagið hefur markað er að skila árangri.

Fjárfestingartekjur námu 396 m.kr. á ársfjórðungnum sem jafngildir 0,8% ávöxtun fjárfestingasafns samanborið við 1,4% hækkun viðmiðunarvísitölu. Skuldabréf skiluðu 685 m.kr. en þar munar mest um ávöxtun fyrirtækjaskuldabréfa. Óskráð hlutabréf drógu niður afkomu ársfjórðungsins en eignaflokkurinn lækkaði um 220 m.kr. eða 3,1%. Virði eignarhlutar í Annata lækkaði að fjárhæð 286 m.kr., en eignarhlutur félagsins er í gegnum sjóði á vegum VEX og lækkaði rekstrarfélagið virðismat á félaginu á ársfjórðungnum. Skráð hlutabréf skiluðu neikvæðri afkomu að fjárhæð 89 m.kr. eða -1,2% ávöxtun en þar hafði lækkun á virði Oculis mest áhrif á afkomu skráðra hlutabréfa eða samtals 356 m.kr. á öðrum ársfjórðungi. Á fyrri hluta ársins námu fjárfestingartekjur 762 m.kr. eða 1,5% ávöxtun samanborið við 0,6% ávöxtun viðmiðunarvísitölu. Afkoma fjárfestinga, að teknu tilliti til fjármagnsliða vátrygginga, var neikvæð um 396 m.kr. á fyrri hluta ársins. Áfram var dregið úr vægi hlutabréfa en í lok tímabilsins nam vægi hlutabréfa 27% en skuldabréfa 73%.

Annar ársfjórðungur var undir væntingum í fjármálastarfseminni, og drógust tekjur saman um tæplega 9% frá sama tímabili árið áður. Samdrátturinn skýrist einkum af lægri þóknanatekjum hjá Fossum í markaðsviðskiptum og fyrirtækjaráðgjöf ásamt neikvæðum fjármunatekjum. Horfur varðandi tekjur í fjármálastarfsemi fyrir árið hafa verið uppfærðar í ljósi þessarar þróunar. Afkoma Fossa var neikvæð um 146 m.kr. eftir skatt á öðrum ársfjórðungi. Auk samdráttar í þóknanatekjum skýrist afkoman af kostnaði vegna forstjóraskipta og starfsmannabreytinga að fjárhæð 75 m.kr., auk neikvæðrar þróunar fjármunatekna. Á ársfjórðungnum jukust tekjur Íslenskra verðbréfa um 35% frá fyrra ári og var afkoma félagsins 55 m.kr. eftir skatt. Tekjur félagsins námu 499 m.kr. á fyrri helmingi ársins og jukust um 24% frá fyrra ári. Afkoma Íslenskra verðbréfa var 37 m.kr. eftir skatt á fyrri árshelmingi samanborið við 18 m.kr. tap eftir skatt á sama tímabili í fyrra. Eignir í stýringu í fjármálastarfsemi námu 251 ma.kr. sem samsvarar 8,3% vexti á milli ára.

Á fyrri helmingi ársins skilaði félagið hluthöfum samtals um 1.792 m.kr. í gegnum endurkaup eigin bréfa og arðgreiðslur. Þrátt fyrir þessar útgreiðslur er eiginfjárstaða félagsins áfram sterk og gjaldþolshlutfall samstæðu um 1,3 í lok tímabilsins, að teknu tilliti til fyrirséðra arðgreiðslna samkvæmt arðgreiðslustefnu. Félagið býr því áfram yfir sterkri eiginfjárstöðu sem styður við áform um framtíðarvöxt og áframhaldandi arðsemi.”

Uppfærðar horfur í rekstri Skaga

Rekstrarhorfur Skaga fyrir árið 2026 voru settar fram í upphafi árs en uppfærðar þann 10. júlí sl. Rekstrarhorfur eru nú sem hér segir1:

  • Afkoma í tryggingastarfsemi: Samsett hlutfall á bilinu 90 – 93%. Markmið <91,5%.
  • Tekjur í fjármálastarfsemi2: Tekjur nemi á bilinu 2.700 – 3.200 milljónir. Markmið >2.900 milljónir.
  • Fjárfestingartekjur: Áætluð ávöxtun fjárfestingareigna3 á árinu er 9,5% en það er byggt á forsendum vaxtastigs í upphafi árs og fjárfestingarstefnu.

Kynningarfundur

Kynningarfundur vegna uppgjörsins verður haldinn miðvikudaginn 15. júlí, klukkan 16:00 í höfuðstöðvum félagsins í Ármúla 3, Reykjavík. Haraldur I. Þórðarson, forstjóri Skaga, mun kynna uppgjörið. Hægt verður að fylgjast með fundinum í beinu streymi og nálgast má upptöku af honum á fjárfestasíðu félagsins. Þar verður einnig hægt að nálgast kynningarefni fundarins.

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar veitir Haraldur I. Þórðarson, forstjóri Skaga, í netfanginu haraldur@skagi.is.


1 Upplýst verður um afkomuhorfur í trygginga- og fjármálastarfsemi ef þær breytast frá þeim vikmörkum sem kynntar eru.

2 Hreinar fjármálatekjur eru allar tekjur í fjármálastarfsemi, þ.m.t. hreinar vaxta- og þóknanatekjur, fjármunatekjur og aðrar tekjur.

3 Um er að ræða áætlaða ávöxtun fjárfestingareigna VÍS. Ekki verður upplýst um frávik frá áætlaðri ávöxtun fjárfestingareigna. Félagið birtir upplýsingar um stærstu eignir í fjárfestingarstarfsemi í fjárfestakynningum ársfjórðungslega. Hafa skal í huga að heildarstærð fjárfestingarsafnsins getur tekið breytingum vegna verðbreytinga, arðgreiðslna, endurkaupa, tilfærslu á ráðstöfun fjármagns innan samstæðu o.fl.