REITIR: Uppgjör fyrstu níu mánaða 2026
Afkoma af rekstri á fyrstu níu mánuðum ársins var góð og í samræmi við áætlanir félagsins. Tekjur voru 14.887 millj. kr. og jukust um 11,1% milli ára og 5,8% umfram verðlag. Rekstrarhagnaður fyrir matsbreytingu var 9.867 millj. kr. og jókst um 12,5%.
Kröftugur innri vöxtur og sterk verkefnastaða
Félagið byggði og þróaði fyrir 9,2 ma. kr. á fyrstu níu mánuðum ársins og umfangsmestu verkefnin eru umbreyting skrifstofuhúsnæðis við Nauthólsveg 52 í 87 rýma hjúkrunarheimili, uppbygging á Hyatt hóteli við Laugaveg 176, og nýframkvæmdir við verslunarkjarna á Korputúni. Verkefnastaða félagsins til lengri tíma í uppbyggingar- og þróunarverkefnum hélt áfram að styrkjast með tilkomu nýrra verkefna. Þar ber helst að nefna nýtt hjúkrunarheimili sem rísa mun við Þursaholt á Akureyri og verður um 9.100 fermetrar að stærð og umbreytingu Borgartúns 37 í hjúkrunarheimili sem verður um 7.200 fermetrar að stærð eftir stækkun hússins.
Öll fimm verkefnin sem upp eru talin koma til með að fara í útleigu eða rekstur á árunum 2027 til 2028 og stjórnendur áætla að þau munu skila um 2,5 ma. kr. tekjuaukningu á ársgrunni.
Guðni Aðalsteinsson, forstjóri Reita:
„Starfsemi Reita gekk vel á fyrstu níu mánuðum ársins og ber þess merki að vaxtarstefnan sem við höfum markað er að skila árangri. Rekstrarumhverfið var þó nokkuð krefjandi á þriðja ársfjórðungi og við höfum fundið fyrir þeirri kólnun í hagkerfinu sem sett hefur svip sinn á haustið. Á meðan vaxtastig helst hátt má gera ráð fyrir að ytri aðstæður verði áfram krefjandi.
Framtíðarhorfur félagsins eru engu að síður bjartar. Sterkur innri vöxtur hefur einkennt árið og leggur traustan grunn að tekjuaukningu til framtíðar. Við settum okkur það markmið að fjárfesta fyrir um 10 milljarða króna í uppbyggingu og framkvæmdum á árinu og það markmið er nú innan seilingar. Þær fjárfestingar munu skila auknum tekjum á komandi árum.
Ný verkefni félagsins renna nýjum stoðum undir starfsemina. Þau breikka tekjugrunn Reita, auka fjölbreytni eignasafnsins, útvíkka starfsemina í nýja flokka, sér í lagi undir heilsutengda starfsemi, og stuðla að áframhaldandi vexti og verðmætasköpun til lengri tíma. Við horfum því bjartsýn fram á veginn.“
Lykiltölur árshlutauppgjörs níu mánaða 2026
| Lykiltölur rekstrar | 9M 2026 | 9M 2025 |
| Leigutekjur | 14.887 | 13.401 |
| Rekstrarkostnaður fjárfestingareigna | -4.155 | -3.795 |
| Stjórnunarkostnaður | -865 | -837 |
| Rekstrarhagnaður fyrir matsbreytingu | 9.867 | 8.769 |
| Matsbreyting fjárfestingareigna | 4.890 | 6.797 |
| Hrein fjármagnsgjöld | 12.294 | 8.278 |
| Hagnaður og heildarhagnaður | 1.969 | 5.765 |
| Hagnaður á hlut | 2,9 kr. | 8,3 kr. |
| Lykiltölur efnahags | 30.9.2026 | 31.12.2025 |
| Fjárfestingareignir | 267.364 | 252.194 |
| Handbært og bundið fé | 1.492 | 1.167 |
| Heildareignir | 272.114 | 256.061 |
| Eigið fé | 77.648 | 79.099 |
| Vaxtaberandi skuldir | 159.930 | 143.552 |
| Eiginfjárhlutfall | 28,7% | 30,9% |
| Skuldsetningarhlutfall | 61,5% | 58,5% |
| Lykilhlutföll | 9M 2026 | 9M 2025 |
| Virkt nýtingarhlufall | 96,6% | 97,7% |
| Nýtingarhlutfall eigna (tekjuvegið) | 93,1% | 94,3% |
| Arðsemi tekjuberandi eigna | 5,7% | 5,5% |
| Rekstrarhagnaðarhlutfall | 61,8% | 61,7% |
| Rekstrarkostnaðarhlutfall | 26,0% | 26,7% |
| Stjórnunarkostnaðarhlutfall | 5,4% | 5,9% |
Horfur ársins
Horfur ársins eru óbreyttar frá uppgjöri fyrri árshelmings. Gert er ráð fyrir að tekjur verði á bilinu 19.800-20.100 millj. kr. og jafnframt er gert ráð fyrir hlutfallslega sambærilegri aukningu á rekstrarhagnaði sem verður á bilinu 13.200-13.500 millj. kr.
Í ljósi krefjandi rekstrarumhverfis og lægri nýtingu á þriðja ársfjórðungi gera stjórnendur ráð fyrir því að rekstrarniðurstaða ársins verði við lægri mörk bilsins.
Ný endurkaupaáætlun
Auk árshlutareiknings, samþykkti stjórn félagsins einnig nýja endurkaupaáætlun þann 2. nóvember sem heimilar félaginu að kaupa 8,5 milljónir hluta eða 1,24% hlutafjár fyrir allt að 1.000 millj. kr. Framkvæmd áætlunarinnar hefst þriðjudaginn 3. nóvember og mun áætlunin vera í gildi þar til öðru hvoru ofangreindra viðmiða um magn eða fjárhæð er náð, en þó aldrei lengur en til 31. janúar 2027.
Kynningarfundur í streymi
Á rafrænum kynningarfundi þann 3. nóvember kl. 8:30 munu Guðni Aðalsteinsson, forstjóri, og Einar Þorsteinsson, fjármálastjóri, kynna uppgjörið og svara spurningum.
Streymi fundarins má nálgast á slóðinni: https://vimeo.com/event/6316372/embed/88e8153733/interaction
Fjárfestar geta sent spurningar sem óskað er eftir að verði teknar fyrir á fundinum á netfangið fjarfestatengsl@reitir.is
Uppgjörið og kynningarefni er aðgengilegt á fjárfestasíðu Reita www.reitir.is/fjarfestar.
Nánari upplýsingar veita:
Guðni Aðalsteinsson, forstjóri, gudni@reitir.is eða í síma 624 0000
Einar Þorsteinsson, fjármálastjóri, einar@reitir.is eða í síma 669 4416.