REITIR: Framkvæmd endurkaupaáætlunar í viku 26 - Lok endurkaupaáætlunar
Stjórn Reita hf. samþykkti nýja endurkaupaáætlun félagsins þann 8. apríl 2026 sbr. tilkynningu í Kauphöll þann dag. Var henni hrint í framkvæmd þann 9. apríl 2026. Endurkaupaáætlunin er framkvæmd í samræmi við ákvæði hlutafélagalaga nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/2014, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052, samanber lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021.
Í 26. viku 2026 keyptu Reitir hf. 125.936 eigin hluti að kaupverði kr. 14.860.448 skv. sundurliðun hér á eftir:
| Dagsetning | Tími | Keyptir hlutir | Gengi | Kaupverð |
| 22/6/26 | 10:04 | 50.000 | 118,00 | 5.900.000 |
| 23/6/26 | 09:44 | 75.936 | 118,00 | 8.960.448 |
| Samtals | 125.936 | 14.860.448 |
Endurkaupaáætlun sem tilkynnt var um í Kauphöll þann 8. april sl. er nú lokið. Reitir hafa nú keypt samtals 3.500.000 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 100% af þeim eigin hlutum sem að hámarki átti að kaupa samkvæmt núgildandi áætlun. Kaupverð hinna keyptu hluta nemur samtals 407.996.160 kr. sem samsvarar 92,7% af þeirri fjárhæð sem að hámarki verður keypt fyrir.
Samkvæmt núgildandi endurkaupaáætlun átti að hámarki að kaupa 3.500.000 hlutir og fjárhæð endurkaupanna yrði aldrei hærri en 440 milljónir króna.
Frá lokum fyrsta ársfjórðungs, síðasta birta uppgjöri félagsins, hefur félagið keypt 3.500.000 eigin hluti fyrir 407.996.160 kr.
Reitir eiga nú samtals 5.500.000 eigin hluti, eða um 0,80% af heildarhlutafé félagsins. Útistandandi hlutir í félaginu eru því 678.500.000.
Upplýsingar veitir Einar Þorsteinsson, fjármálastjóri, í síma 669 4416 eða á einar@reitir.is.