Måndag 15 Juni | 12:06:08 Europe / Stockholm
2026-06-15 10:30:00

Stjórn Reita hf. samþykkti nýja endurkaupaáætlun félagsins þann 8. apríl 2026 sbr. tilkynningu í Kauphöll þann dag. Var henni hrint í framkvæmd þann 9. apríl 2026. Endurkaupaáætlunin er framkvæmd í samræmi við ákvæði hlutafélagalaga nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/2014, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052, samanber lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021.

Í 24. viku 2026 keyptu Reitir hf. 345.500 eigin hluti að kaupverði kr. 40.889.500  skv. sundurliðun hér á eftir:

DagsetningTímiKeyptir hlutirGengiKaupverð
8/6/2609:3010.000119,001.190.000
8/6/2610:5320.000119,002.380.000
8/6/2610:5820.000119,002.380.000
8/6/2611:0844.000118,505.214.000
9/6/2611:1750.000118,005.900.000
9/6/2614:0350.000118,005.900.000
10/6/2609:3010.000118,001.180.000
10/6/2610:1850.000119,005.950.000
10/6/2611:4540.000118,004.720.000
11/6/2610:5440.000118,004.720.000
11/6/2610:5410.000118,001.180.000
11/6/2611:541.500117,00175.500
Samtals 345.500 40.889.500

Reitir hafa nú keypt samtals 3.069.616 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 87,7% af þeim eigin hlutum sem að hámarki verða keyptir samkvæmt núgildandi áætlun. Kaupverð hinna keyptu hluta nemur samtals 357.112.348 kr. sem samsvarar 81,2% af þeirri fjárhæð sem að hámarki verður keypt fyrir. Í fyrri tilkynnningum hafði hlutfall sem eftir er af áætlun misreiknast en leiðréttist hér.

Samkvæmt núgildandi endurkaupaáætlun verða að hámarki keyptir 3.500.000 hlutir og fjárhæð endurkaupanna verður aldrei hærri en 440 milljónir króna.

Frá lokum fyrsta ársfjórðungs, síðasta birta uppgjöri félagsins, hefur félagið keypt 3.069.616 eigin hluti fyrir 357.112.348 kr.

Reitir eiga nú samtals 5.069.616 eigin hluti, eða um 0,74% af heildarhlutafé félagsins. Útistandandi hlutir í félaginu eru því 678.930.384.

Upplýsingar veitir Einar Þorsteinsson, fjármálastjóri, í síma 669 4416 eða á einar@reitir.is.