Tisdag 14 Juli | 01:49:45 Europe / Stockholm
Est. tid*
2026-03-27 - X-dag ordinarie utdelning NOVA 0.10 ISK
2025-03-28 - X-dag ordinarie utdelning NOVA 0.08 ISK
2024-03-28 - X-dag ordinarie utdelning NOVA 0.00 ISK
2024-03-21 - Årsstämma
2024-02-27 - Bokslutskommuniké 2023
2023-10-25 - Kvartalsrapport 2023-Q3
2023-08-24 - Kvartalsrapport 2023-Q2
2023-05-02 - Kvartalsrapport 2023-Q1

All ägardata du vill ha finns i Holdings!

Nova Klúbburinn hf.: Nova Klúbburinn uppfærir afkomuspá vegna kaupanna á Ofar

2026-07-13 17:30:00

Nova Klúbburinn (félagið) uppfærir í dag afkomuspá sína fyrir árið 2026 í kjölfar þess að kaup félagsins á Ofar gengu í gegn þann 19. júní síðastliðinn. Með kaupunum varð Ofar hluti af samstæðureikningi félagsins frá og með 1. júní 2026.

Rekstur Ofar hefur þróast í takt við væntingar það sem af er ári og eru bæði tekjur og EBITDA í góðum vexti frá fyrra ári. Þar sem Ofar er nú hluti af samstæðu Nova Klúbbsins í 7 mánuði af árinu leiðir það til uppfærslu á afkomuspá samstæðunnar fyrir árið í heild.

Uppfærð afkomuspá fyrir árið 2026:

  • Tekjur verði á bilinu 19.000 – 19.400 ma.kr.  (~ 44% - 47% vöxtur)*
  • EBITDA verði á bilinu 3.600 – 3.800 ma.kr. (~ 16% - 23% vöxtur)*
  • Heildarfjárfestingar áætlaðar um 1.200 ma.kr. (~ 6% af tekjum)

(Áður útgefin spá: 13.600 – 14.000 ma.kr. tekjur, 3.200 – 3.400 ma.kr. EBITDA og heildarfjárfestingar um 1.100 ma.kr.)

Uppfærð afkomuspá gerir ráð fyrir að einskiptis kostnaður vegna innleiðingar og samþættingar verði að mestu kominn fram á þessu ári en að jákvæð samlegðaráhrif verði ekki komin fram nema að litlu leyti. Á komandi ári er áætlað að þau verkefni sem skila eiga jákvæðri samlegð verði komin í fulla virkni. Hækkun fjárfestingaspár um 100 m.kr. skýrist að stærstum hluta af verkefnum tengdum samþættingu og innleiðingu.

Kaupin á Ofar eru fyrsta stóra skrefið í uppbyggingu Nova Klúbbsins sem fjölbreyttrar tækni- og innviðasamstæðu. Á næstu misserum verður lögð áhersla á að ná fram rekstrarlegri samlegð á milli félaganna um leið og bæði Nova og Ofar þróast áfram sem sjálfstæð og sterk vörumerki. Helstu verkefni fram undan eru meðal annars:

  • Sameiginlegar höfuðstöðvar Nova og Ofar í Álfabakka 8 á öðrum ársfjórðungi 2027.
  • Sameining vöruhúsarekstrar sem mun einfalda innkaup og birgðahald og bæta nýtingu rekstrarfjármagns.
  • Aukin krosssala milli félaganna, meðal annars með því að nýta sterka stöðu Ofar á fyrirtækjamarkaði.
  • Áframhaldandi uppbygging nýrra lausna tengdum gagnaverum og stjórnkerfisvöktun þeirra.

Nova Klúbburinn telur að þessi verkefni muni skapa rekstrarlegt hagræði, aukin verðmæti og ný vaxtartækifæri á komandi árum. Sameiginleg þekking Nova og Ofar skapar ný tækifæri til að þróa samþættar lausnir fyrir fyrirtæki, meðal annars á sviði gagnavera, innviðavöktunar, hlutaneta (IoT) og rekstrarþjónustu. Árið 2027 verður umbreytingaár þar sem Nova Klúbburinn mun ráðstafa fjármagni með markvissum hætti í verkefni sem hafa skýra arðsemiskröfu og styðja við langtímaverðmætasköpun hluthafa.

„Við erum ánægð með árangur Ofar á árinu og hlökkum til að byggja enn öflugri samstæðu með auknu samstarfi félaganna. Ofar býr yfir sterkum tengslum við íslenskt atvinnulíf og stór hluti tekna félagsins kemur frá traustum viðskiptasamböndum. Með öflugu baklandi Nova Klúbbsins skapast aukin tækifæri til fjárfestinga, uppbyggingar innviða og þróunar nýrra verkefna sem styðja við framtíðarsýn Ofar. Kaupin eru liður í stefnu Nova Klúbbsins um að byggja upp öfluga samstæðu sem skapar verðmæti með fjarskiptum, tæknilausnum og innviðum. Kaupin breikka tekjugrunn félagsins og styrkja sjóðstreymi samstæðunnar“ segir Sylvía Kristín Ólafsdóttir, forstjóri Nova Klúbbsins.

*Vöxtur miðast við raunafkomu samstæðunnar 2025 og er reiknaður frá leiðréttum tölum 2025 vegna breytinga á rekstri Sendafélagsins ehf.