Vem äger bolaget?
All ägardata du vill ha finns i Holdings!
Lággjaldafélag sem hagnýtir gervigreind frá upphafi
Nýtt farsímafélag í eigu Nova Klúbbsins, Kosmos, hefur formlega starfsemi í dag og markar tímamót á íslenskum fjarskiptamarkaði. Með lítilli yfirbyggingu, hagnýtingu gervigreindar og alsjálfvirkri þjónustu býðst viðskiptavinum nú hagstæðasta farsíma- og netþjónusta landsins, besta verðið á Netinu erlendis og verðtrygging í 2 ár. Kosmos er jafnframt fyrsta farsímafélagið á Íslandi sem byggir þjónustu sína eingöngu á 5G tækni og rafrænum símkortum (eSIM).
„Við sameinum lágan rekstrarkostnað og nýjustu tækni til að bjóða einfaldari og hagkvæmari þjónustu. Með því að byggja lausnir okkar á forsendum gervigreindar frá fyrsta degi getum við bæði lækkað verð og bætt þjónustu,“ segir Sverrir Hreiðarsson, framkvæmdastjóri Kosmos. „Með eingöngu stafræna þjónustu, þráðlausar 5G tengingar og rafræn símkort, höfum við tekið út allan óþarfa án þess að skerða gæði þjónustunnar.“
Ótakmarkað gagnamagn og einföld verðskrá
Þjónustuframboð Kosmos er einfalt og gagnsætt. Helsta áskriftaleið félagsins er ótakmarkað heimanet og farsími á 8.990 krónur á mánuði, með möguleika á að bæta við fleiri farsímum á lægra verði. Þá eru einnig í boði ódýrar farsímaáskriftir fyrir þá sem þurfa ekki heimanet.
Viðskiptavinir Kosmos njóta verðtryggingar í tvö ár frá kaupdegi. Áskriftarverð þeirra hækkar því ekki, óháð breytingum á gjaldskrá. Lækki áskriftarverð njóta viðskiptavinir þess hinsvegar strax. Þá býðst viðskiptavinum að greiða áskrift fyrirfram til eins árs og fá þannig 25% aukaafslátt. „Þetta er ný nálgun í anda netáskrifta eins og hjá Apple, Spotify, Disney og fleiri aðilum,“ segir Sverrir. „Viðskiptavinir Kosmos geta þannig sparað enn meira en eru þó aldrei bundnir okkur.“
Besta verðið og gagnsæ notkun erlendis
Kosmos leggur áherslu á skýra og gagnsæja verðlagningu erlendis. Innan Evrópu er viðskiptavinir á heimavelli og þar gilda hefðbundnar reglur um notkun, en utan Evrópu geta viðskiptavinir nú keypt ótakmarkað gagnamagn eftir löndum eða svæðum á föstu verði fyrir þann dagafjölda sem hentar hverju sinni.
Ný nálgun og aukin samkeppni
Kosmos er í eigu Nova Klúbbsins, móðurfélags Nova, og nýtir fjarskiptainnviði Nova hér á landi en utan landsteinana er byggt á samningi við alþjóða fjarskiptarisann Orange.
„Í dag stígur Nova enn eitt djarft skref með stofnun Kosmos, nýs dótturfélags Nova Klúbbsins. Með tilkomu Kosmos erum við að mæta eftirspurn eftir einfaldari og ódýrari fjarskiptaþjónustu, á sama tíma og við aukum nýtingu innviða. Kosmos er byggt frá grunni sem lággjaldafélag sem nýtir eSIM, 5G-net og gervigreind til að bjóða einfalda og hagkvæma þjónustu,“ segir Sylvía Kristín Ólafsdóttir, forstjóri Nova Klúbbsins. „Félagið er rekið af litlum og öflugum hópi sem sýnir svart á hvítu hvernig gervigreind getur umbylt rekstrarlíkani í fjarskiptum. Með Kosmos erum við meðvitað að ögra okkur sjálfum og skapa beina samkeppni við Nova á einstaklingsmarkaði. Við trúum því einfaldlega að besta leiðin til að verja sterka stöðu sé að vera fyrst til að endurskilgreina hana. Á sama tíma hefur Nova búið til einfalda heildsöluvöru sem að aðrir aðilar geta nýtt sér. Þetta er leið til að nýta enn betur fjarskiptainnviði Nova.“
Fyrsta gervigreindardrifna fyrirtækið
Kosmos er fyrsta íslenska „AI First“ fyrirtækið á markaði. Hagnýting gervigreindar er í lykilhlutverki í allri starfsemi félagsins frá upphafi, allt frá sölu og ráðgjöf til þjónustu og eftirfylgni við viðskiptavini. Viðskiptvinir geta átt í samskiptum við Kosmos, snjallasta gervigreindarfulltrúa landsins í gegnum kosmos.is og smáforrit þar sem öll afgreiðsla og aðstoð er veitt í rauntíma.
Opnunartilboð – frítt fyrsta mánuðinn
Skráning nýrra viðskiptavina er hafin á kosmos.is og er fyrsti mánuðurinn frír.
Kosmos leggur áherslu á nýja nálgun í fjarskiptaþjónustu:
- Lægsta verðið í net- og farsímaþjónustu á Íslandi
- Besta verðið á Netinu í útlöndum, skýr og gagnsæ gjaldskrá
- Verðtrygging í 2 ár – engin falin gjöld eða skyndilegar hækkanir
- Rafrænt símkort (eSIM) eingöngu – engin plastkort, engin bið
- Sjálfsafgreiðsla og gervigreind – framúrskarandi þjónustustig
- Þráðlaus 5G tenging – öflugt heimanet og gott samband um allt land
Frekari upplýsingar veita:
Kosmos
Sverrir Hreiðarsson, framkvæmdastjóri Kosmos
netfang: sverrir@kosmos.is
sími: 820-0230
Nova Klúbburinn
Sylvía Kristín Ólafsdóttir, forstjóri Nova Klúbbsins
netfang: sylvia@nova.is
sími: 855-1155