Í 26. viku 2025 keypti Nova Klúbburinn hf. 3.000.000 eigin hluti að kaupverði 14.298.000 kr. í samræmi við eftirfarandi:
| Dagsetning | Tími | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð (gengi) | Kaupverð (kr.) | 
| 23.6.2025 | 10:33 | 600.000 | 4,78 | 2.868.000 | 
| 24.6.2025 | 10:33 | 600.000 | 4,79 | 2.874.000 | 
| 25.6.2025 | 10:05 | 600.000 | 4,76 | 2.856.000 | 
| 26.6.2025 | 15:08 | 600.000 | 4,74 | 2.844.000 | 
| 27.6.2025 | 09:42 | 600.000 | 4,76 | 2.856.000 | 
| Samtals | 3.000.000 | 14.298.000 | ||
Viðskiptin eru í samræmi við endurkaupaáætlun Nova Klúbbsins sem tilkynnt var um í Kauphöll Íslands hf. þann 12. maí 2025. Endurkaup munu samkvæmt áætluninni nema að hámarki 550 milljónum kr. að kaupverði og mun áætlunin vera í gildi þar til því hámarki er náð, þó aldrei lengur en fram að aðalfundi félagins 2026.
Nova Klúbburinn átti 15.000.000 eigin hluti fyrir viðskiptin og á því að þeim loknum 18.000.000 hluti, eða um 0,51% af útgefnum hlutum í félaginu, og nemur heildarkaupverð þeirra 86.622.000 kr.
Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar verður í samræmi við lög um hlutafélög, nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 596/2014, um markaðssvik, sbr. lög um aðgerðir gegn markaðssvikum, nr. 60/2021, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar nr. 2016/1052/EB, sem hefur að geyma tæknilega skilmála varðandi endurkaupaáætlanir.
Nánari upplýsingar veitir Þórhallur Jóhannsson, fjármálastjóri Nova Klúbbsins, á fjarfestatengsl@nova.is
 
                 
                 
            