Í 22. viku 2025 keypti Nova Klúbburinn hf. 1.800.000 eigin hluti að kaupverði 8.460.000 kr. í samræmi við eftirfarandi:
| Dagsetning | Tími | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð (gengi) | Kaupverð (kr.) | 
| 26/05/2025 | 09:50 | 600.000 | 4.76 | 2.856.000 | 
| 27/05/2025 | 12:35 | 600.000 | 4.68 | 2.808.000 | 
| 30/05/2025 | 14:05 | 600.000 | 4.66 | 2.796.000 | 
| Samtals | 1.800.000 | 8.460.000 | ||
Viðskiptin eru í samræmi við endurkaupaáætlun Nova Klúbbsins sem tilkynnt var um í Kauphöll Íslands hf. þann 12. maí 2025. Endurkaup munu samkvæmt áætluninni nema að hámarki 550 milljónum kr. að kaupverði og mun áætlunin vera í gildi þar til því hámarki er náð, þó aldrei lengur en fram að aðalfundi félagins 2026.
Nova Klúbburinn átti 5.400.000 eigin hluti fyrir viðskiptin og á því að þeim loknum 7.200.000 hluti, eða um 0,20% af útgefnum hlutum í félaginu, og nemur heildarkaupverð þeirra 34.566.000 kr.
Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar verður í samræmi við lög um hlutafélög, nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 596/2014, um markaðssvik, sbr. lög um aðgerðir gegn markaðssvikum, nr. 60/2021, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar nr. 2016/1052/EB, sem hefur að geyma tæknilega skilmála varðandi endurkaupaáætlanir.
Nánari upplýsingar veitir Þórhallur Jóhannsson, fjármálastjóri Nova Klúbbsins, á fjarfestatengsl@nova.is
 
                 
                 
            