Söndag 6 Juli | 07:35:27 Europe / Stockholm
2025-05-19 11:23:27

Nova Klúbburinn hf.: Framkvæmd endurkaupaáætlunar í viku 20

Í 20. viku 2025 keypti Nova Klúbburinn hf. 2.400.000 eigin hluti að kaupverði 11.628.000 kr. í samræmi við eftirfarandi:

DagsetningTímiKeyptir hlutirViðskiptaverð (gengi)Kaupverð (kr.)
12/05/202509:58600.0004.852.910.000
13/05/202510:17600.0004.842.904.000
15/05/202510:03600.0004.792.874.000
16/05/202510:36600.0004.902.940.000
Samtals2.400.000 11.628.000

 

Viðskiptin eru í samræmi við endurkaupaáætlun Nova Klúbbsins sem tilkynnt var um í Kauphöll Íslands hf. þann 12. maí 2025. Endurkaup munu samkvæmt áætluninni nema að hámarki 550 milljónum kr. að kaupverði og mun áætlunin vera í gildi þar til því hámarki er náð, þó aldrei lengur en fram að aðalfundi félagins 2026.

Nova Klúbburinn átti enga eigin hluti fyrir viðskiptin og á því að þeim loknum 2.400.000 hluti, eða um 0,07% af útgefnum hlutum í félaginu, og nemur heildarkaupverð þeirra 11.628.000 kr.

Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar verður í samræmi við lög um hlutafélög, nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 596/2014, um markaðssvik, sbr. lög um aðgerðir gegn markaðssvikum, nr. 60/2021, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar nr. 2016/1052/EB, sem hefur að geyma tæknilega skilmála varðandi endurkaupaáætlanir.

Nánari upplýsingar veitir Þórhallur Jóhannsson, fjármálastjóri Nova Klúbbsins, á fjarfestatengsl@nova.is