Söndag 5 April | 10:59:27 Europe / Stockholm

Kalender

Est. tid*
2024-03-21 - Årsstämma
2024-02-27 - Bokslutskommuniké 2023
2023-10-25 - Kvartalsrapport 2023-Q3
2023-08-24 - Kvartalsrapport 2023-Q2
2023-05-02 - Kvartalsrapport 2023-Q1

Vem äger bolaget?

All ägardata du vill ha finns i Holdings!

2026-03-24 12:04:45

Aðalfundur Nova klúbbsins hf. verður haldinn fimmtudaginn 26. mars, kl. 16.

Eftirtalin framboð bárust til setu í stjórn félagsins:

  • Erla Ósk Ásgeirsdóttir
  • Haukur Skúlason
  • Hjördís Elsa Ásgeirsdóttir
  • Hrund Rudolfsdóttir
  • Jóhannes Þorsteinsson
  • Jón Óttar Birgisson
  • Sigríður Olgeirsdóttir
  • Steinunn Hlíf Sigurðardóttir

Framboðsfrestur er nú útrunninn og hefur stjórn félagsins staðfest lögmæti framboðanna. Í samþykktum Nova klúbbsins hf. kemur fram að fimm skipa stjórn félagsins og fer því fram stjórnarkjör á aðalfundinum.

Eftirtalin gefa kost á sér til setu í tilnefningarnefnd félagsins:

  • Áslaug Eva Björnsdóttir
  • Helgi Bjarnason
  • Thelma Kristín Kvaran

Framboðsfrestur vegna framboða til setu í tilnefningarnefnd félagsins er einnig útrunninn og hefur stjórn staðfest lögmæti framboðanna. Starfsreglur tilnefningarnefndar gera ráð fyrir tveimur nefndarmönnum til setu í nefndinni, verður því kjörið í nefndina á aðalfundinum.

Nánari upplýsingar um frambjóðendur, auk annars fundarefnis og leiðbeininga vegna skráningar til þátttöku á fundinum, er að finna á vefsíðu félagsins, www.nova.is/fjarfestar.