Söndag 6 Juli | 08:09:54 Europe / Stockholm
2025-04-28 18:00:00

Í viku 17 keypti Kvika banki hf. („Kvika“ eða „bankinn“) 15.800.000 eigin hluti að kaupverði 216.190.000 kr. eins og nánar er greint frá hér á eftir:

DagsetningTímiKeyptir hlutirViðskiptaverð (gengi)Kaupverð
22.4.202510:44:04 2.000.000     13,30 26.600.000    
22.4.202514:11:04 1.800.000     13,30 23.940.000    
23.4.202511:23:38 3.000.000     13,53 40.575.000    
23.4.202513:47:54 3.000.000     13,70 41.100.000    
23.4.202515:09:05 1.000.000     13,68 13.675.000    
25.4.202510:25:34 3.000.000     14,05 42.150.000    
25.4.202511:36:56 2.000.000     14,08 28.150.000    
Samtals 15.800.000 216.190.000

Um er að ræða viðskipti bankans í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem tilkynnt var um í Kauphöll þann 27. febrúar sl. og er gerð í samræmi við heimild hluthafafundar Kviku þann 21. mars 2024.

Kvika hefur nú keypt samtals 128.687.962 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 2,779% af útgefnum hlutum í félaginu. Nemur heildarkaupverð þeirra 2.025.971.231 kr. Eftir kaupin eru eigin hlutir Kviku samtals 99.507.963 hlutir eða sem nemur 2,149% af útgefnum hlutum í félaginu.

Endurkaup samkvæmt áætluninni munu nema að hámarki 2.500.000.000 að kaupvirði.

Endurkaupaáætlunin er í gildi frá 27. febrúar 2025 til aðalfundar Kviku á árinu 2026 nema hámarks kaupvirði verði náð fyrir þann tíma.

Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar verður í samræmi við lög. þ.m.t. lög um hlutafélög nr. 2/1995. reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik (MAR) nr. 596/2014. sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnar ESB (EU) 2016/1052 frá 8. mars 2016. sbr. lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021 sem tóku gildi á Íslandi 1. september 2021.

Nánari upplýsingar veita fjárfestatengsl Kviku á netfanginu fjarfestatengsl@kvika.is