Söndag 6 Juli | 08:17:24 Europe / Stockholm
2025-06-10 13:34:20

Í viku 23 keypti Kvika banki hf. („Kvika“ eða „bankinn“) 16.200.000 eigin hluti að kaupverði 287.285.000 kr. eins og nánar er greint frá hér á eftir:

DagsetningTímiKeyptir hlutirViðskiptaverð (gengi)Kaupverð
2.6.2025 10:56:201.000.00017,45017.450.000
2.6.202514:32:311.700.00017,55029.835.000
2.6.202514:46:221.000.00017,55017.550.000
2.6.202515:08:061.000.00017,55017.550.000
3.6.202510:44:151.000.00017,50017.500.000
3.6.202512:09:501.000.00017,80017.800.000
3.6.202513:23:291.000.00017,80017.800.000
4.6.202511:51:381.000.00017,87517.875.000
4.6.202514:10:471.000.00017,90017.900.000
5.6.202511:34:002.000.00017,85035.700.000
5.6.202513:59:232.000.00017,85035.700.000
6.6.202510:07:091.000.00017,85017.850.000
6.6.202514:01:571.500.00017,85026.775.000
Samtals 16.200.000 287.285.000

Um er að ræða viðskipti bankans í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem tilkynnt var um í Kauphöll þann 22. maí sl. og er gerð í samræmi við heimild hluthafafundar Kviku þann 21. mars 2024 og endurnýjuð á aðalfundi Kviku þann 26 Mars 2025.

Kvika hefur nú keypt samtals 39.200.000 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 0,846% af útgefnum hlutum í félaginu. Nemur heildarkaupverð þeirra 667.435.000 kr. Eftir kaupin eru eigin hlutir Kviku samtals 173.610.410 hlutir eða sem nemur 3,749% af útgefnum hlutum í félaginu.

Endurkaup samkvæmt áætluninni munu nema að hámarki 2.500.000.000 að kaupvirði en aldrei fleiri hluti en 236.409.591.

Endurkaupaáætlunin er í gildi frá 22. maí 2025 til aðalfundar Kviku á árinu 2026 nema hámarks kaupvirði verði náð fyrir þann tíma.

Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar skal vera í samræmi við lög. þ.m.t. lög um hlutafélög nr. 2/1995, reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik (MAR) nr. 596/2014 sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnar ESB (EU) 2016/1052 frá 8. mars 2016. sbr. lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021 sem tóku gildi á Íslandi 1. september 2021.

Nánari upplýsingar veita fjárfestatengsl Kviku á netfanginu fjarfestatengsl@kvika.is