Söndag 6 Juli | 08:10:53 Europe / Stockholm
2025-06-16 18:24:36

Í viku 24 keypti Kvika banki hf. („Kvika“ eða „bankinn“) 14.250.000 eigin hluti að kaupverði 250.262.500 kr. eins og nánar er greint frá hér á eftir:

DagsetningTímiKeyptir hlutirViðskiptaverð (gengi)Kaupverð
10.6.202510:02:471.000.00017,80017.800.000
10.6.202512:44:561.000.00017,65017.650.000
10.6.202513:30:241.000.00017,65017.650.000
10.6.202514:22:311.500.00017,65026.475.000
10.6.202515:24:50750.00017,65013.237.500
11.6.202510:25:572.000.00017,55035.100.000
11.6.202511:34:502.000.00017,50035.000.000
11.6.202514:34:201.000.00017,45017.450.000
12.6.202514:12:322.000.00017,45034.900.000
13.6.202514:40:002.000.00017,50035.000.000
Samtals 14.250.000 250.262.500

Um er að ræða viðskipti bankans í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem tilkynnt var um í Kauphöll þann 22. maí sl. og er gerð í samræmi við heimild hluthafafundar Kviku þann 21. mars 2024 og endurnýjuð á aðalfundi Kviku þann 26 Mars 2025.

Kvika hefur nú keypt samtals 53.450.000 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 1,154% af útgefnum hlutum í félaginu. Nemur heildarkaupverð þeirra 917.697.500 kr. Eftir kaupin eru eigin hlutir Kviku samtals 187.860.410 hlutir eða sem nemur 4,057% af útgefnum hlutum í félaginu.

Endurkaup samkvæmt áætluninni munu nema að hámarki 2.500.000.000 að kaupvirði en aldrei fleiri hluti en 236.409.591.

Endurkaupaáætlunin er í gildi frá 22. maí 2025 til aðalfundar Kviku á árinu 2026 nema hámarks kaupvirði verði náð fyrir þann tíma.

Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar skal vera í samræmi við lög. þ.m.t. lög um hlutafélög nr. 2/1995, reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik (MAR) nr. 596/2014 sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnar ESB (EU) 2016/1052 frá 8. mars 2016. sbr. lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021 sem tóku gildi á Íslandi 1. september 2021.

Nánari upplýsingar veita fjárfestatengsl Kviku á netfanginu fjarfestatengsl@kvika.is