Beskrivning
| Land | Island |
|---|---|
| Lista | Mid Cap Iceland |
| Sektor | Finans |
| Industri | Bank |
Vem äger bolaget?
All ägardata du vill ha finns i Holdings!
Í viku 7 keypti Kvika banki hf. („Kvika“ eða „bankinn“) 11.300.000 eigin hluti að kaupverði 210.752.500 kr. eins og nánar er greint frá hér á eftir:
| Dagsetning | Tími | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð (gengi) | Kaupverð |
| 9.2.2026 | 10:45:44 | 1.000.000 | 18,95 | 18.950.000 |
| 9.2.2026 | 13:50:04 | 1.000.000 | 18,975 | 18.975.000 |
| 9.2.2026 | 14:49:22 | 600.000 | 18,975 | 11.385.000 |
| 10.2.2026 | 10:57:27 | 1.000.000 | 18,95 | 18.950.000 |
| 10.2.2026 | 13:02:46 | 1.000.000 | 18,95 | 18.950.000 |
| 11.2.2026 | 09:58:56 | 1.000.000 | 18,875 | 18.875.000 |
| 11.2.2026 | 11:42:58 | 1.000.000 | 18,875 | 18.875.000 |
| 11.2.2026 | 14:58:16 | 600.000 | 18,80 | 11.280.000 |
| 12.2.2026 | 09:36:07 | 1.000.000 | 18,25 | 18.250.000 |
| 12.2.2026 | 11:54:16 | 1.000.000 | 18,15 | 18.150.000 |
| 12.2.2026 | 15:13:09 | 100.000 | 18,13 | 1.812.500 |
| 13.2.2026 | 10:28:42 | 1.000.000 | 18,15 | 18.150.000 |
| 13.2.2026 | 12:07:41 | 1.000.000 | 18,15 | 18.150.000 |
| Samtals | 11.300.000 | 210.752.500 |
Um er að ræða viðskipti bankans í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem tilkynnt var um í Kauphöll þann 22. maí 2025 og er gerð í samræmi við heimild hluthafafundar Kviku þann 21. mars 2024 og endurnýjuð á aðalfundi Kviku þann 26. mars 2025. Gert var hlé á endurkaupaáætlun sbr. tilkynningu þann 07.07.2025 og hún endurvakin sbr. tilkynningu þann 15.01.2026.
Kvika hefur nú keypt samtals 132.100.000 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 2,853% af útgefnum hlutum í félaginu. Nemur heildarkaupverð þeirra 2.358.046.250 kr. Eftir kaupin eru eigin hlutir Kviku samtals 266.510.410 hlutir eða sem nemur 5,755% af útgefnum hlutum í félaginu.
Endurkaup samkvæmt áætluninni munu nema að hámarki 2.500.000.000 kr. að kaupvirði en aldrei fleiri hluti en 236.409.591.
Endurkaupaáætlunin er í gildi frá 22. maí 2025 til aðalfundar Kviku á árinu 2026 nema hámarks kaupvirði verði náð fyrir þann tíma.
Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar skal vera í samræmi við lög. þ.m.t. lög um hlutafélög nr. 2/1995, reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik (MAR) nr. 596/2014 sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnar ESB (EU) 2016/1052 frá 8. mars 2016. sbr. lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021 sem tóku gildi á Íslandi 1. september 2021.
Nánari upplýsingar veita fjárfestatengsl Kviku á netfanginu fjarfestatengsl@kvika.is