Kvika banki hf.: Leyfi veitt til útgáfu sértryggðra skuldabréfa
2026-07-13 18:04:42
Fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands veitti Kviku banka hf. („Kvika“ eða „bankinn“) í dag leyfi til útgáfu sértryggðra skuldabréfa samkvæmt lögum nr. 11/2008 um sértryggð skuldabréf.
Samhliða leyfisferlinu hefur Kvika unnið að uppsetningu útgáfuramma fyrir sértryggð skuldabréf. Gert er ráð fyrir að fyrsta útgáfa undir rammanum geti farið fram á seinni helmingi ársins 2026.
Fyrir frekari upplýsingar vinsamlegast hafið samband við fjárfestatengsl Kviku banka á netfanginu fjarfestatengsl@kvika.is eða í síma 540 3200.