Torsdag 15 Maj | 21:36:26 Europe / Stockholm

Kalender

Est. tid*
2024-02-15 - Bokslutskommuniké 2023
2023-11-02 - Kvartalsrapport 2023-Q3
2023-08-17 - Kvartalsrapport 2023-Q2
2023-05-11 - Kvartalsrapport 2023-Q1
2023-03-30 - Årsstämma
2023-02-15 - Bokslutskommuniké 2022
2022-02-24 - Bokslutskommuniké 2021
2021-11-25 - Kvartalsrapport 2021-Q3
2021-08-26 - Kvartalsrapport 2021-Q2
2021-05-27 - Kvartalsrapport 2021-Q1
2021-04-21 - Årsstämma
2021-02-17 - Bokslutskommuniké 2020
2019-03-21 - X-dag ordinarie utdelning KVIKA 0.24 ISK

Beskrivning

LandIsland
ListaMid Cap Iceland
SektorFinans
IndustriBank
Kvika Banki bedriver bankverksamhet. Störst inriktning återfinns inom investment banking där bolaget erbjuder traditionell kapitalförvaltning, mäkleri och tillhörande rådgivning. Specialistkompetens återfinns inom erbjudandet av finansiella tjänster och investering, från räntebärande papper, aktier- och fondsparande, till fastighetsinvestering. Kunderna återfinns bland privat- och företagskunder samt institutioner.
2025-05-07 17:35:00

Á stjórnarfundi þann 7. maí 2025 samþykktu stjórn og forstjóri árshlutauppgjör samstæðu Kviku banka hf. („Kvika“) fyrir fyrsta ársfjórðung 2025.

Helstu atriði í afkomu fyrsta ársfjórðungs (1F 2025)

  • Hagnaður eftir skatta nam 2.086 m.kr. á 1F 2025, samanborið við 1.083 m.kr. á 1F 2024 og eykst um 1.003 m.kr. eða 92,6%.
  • Hagnaður fyrir skatta af áframhaldandi starfsemi, leiðréttur fyrir einskiptisliðum, nam 1.590 m.kr. á 1F 2025, samanborið við 1.215 m.kr. á 1F 2024 og hækkar því um 375 m.kr. frá fyrra ári eða 31%.  Óleiðréttur hagnaður fyrir skatta á fjórðungnum nam 701 m.kr.
  • Hreinar vaxtatekjur námu 2.917 m.kr. á 1F 2025, samanborið við 2.326 m.kr. á 1F 2024 og hækkuðu því um 590 m.kr. frá fyrra ári eða 25,4%.
  • Vaxtamunur var 4,4% á 1F 2025, samanborið við 3,8% á 1F 2024. Hækkun vaxtamunar á milli ára skýrist m.a. af sterkri lausafjárstöðu, betri fjármögnunarkjörum og stækkun lánasafns á milli ára.   
  • Hreinar þóknanatekjur voru 1.520 m.kr. á 1F 2025, samanborið við 1.633 m.kr. á 1F 2024 og lækkuðu því um 113 m.kr. frá fyrra ári eða 6,9%.
  • Aðrar hreinar rekstrartekjur námu 12 m.kr. á 1F 2025 samanborið við 110 m.kr. á 1F 2024 og lækkuðu því um 98 m.kr. frá fyrra ári eða 89,1%.
  • Rekstrarkostnaður nam 3.090 m.kr. á 1F 2025, samanborið við 2.666 m.kr. á 1F 2024 og eykst um 424 m.kr. frá fyrra ári eða 15,9%. Rekstrarkostnaður leiðréttur fyrir einskiptisliðum nam 2.865 m.kr. á 1F 2025.
  • Arðsemi efnislegs eigin fjár (RoTE) fyrir skatta, leiðrétt fyrir einskiptisliðum,var 17,7%. Arðsemi efnislegs eigin fjár fyrir skatta af afkomu samkvæmt rekstrarreikningi var 7,8%.
  • Hagnaður á hlut nam 0,45 kr. á 1F 2025, samanborið við 0,23 kr. á 1F 2024.

Afkoma af eignum haldið til sölu:

  • Afkoma eigna haldið til sölu eftir skatta samanstendur af hagnaði af sölu TM trygginga hf. auk tengdra tekna og kostnaðar.  

Helstu atriði efnahags þann 31.3.2025:

  • Innlán frá viðskiptavinum námu 168 ma.kr., samanborið við 163 ma.kr. í lok árs 2024 og jukust um 2,8% á ársfjórðungnum.
  • Útlán til viðskiptavina voru 161 ma.kr., samanborið við 150 ma.kr. í lok árs 2024 og jukust um 6,9% á ársfjórðungnum.
  • Heildareignir námu 343 ma.kr., samanborið við 355 ma.kr. í lok árs 2024 og minnka um 3,4% á ársfjórðungnum
  • Eigið fé samstæðunnar var 68 ma.kr., samanborið við 90 ma.kr. í lok árs 2024 og lækkar verulega í kjölfar sölu á TM en á uppgjörsdegi lá fyrir samþykki hluthafafundar fyrir sérstakri arðgreiðslu sem ekki hafði verið greidd út. Arðgreiðslan er færð sem ógreidd arðgreiðsla meðal annarra skulda.
  • Eiginfjárhlutfall samstæðunnar (CAR) var 23,9%, samanborið við 22,8% í lok árs 2024. Hlutfallið tekur tillit til óendurskoðaðs hagnaðar fjórðungsins en eiginfjárhlutfall samkvæmt reglum Fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands var 23,0% í lok mars 2025.
  • Heildar lausafjárþekjuhlutfall (LCR) samstæðunnar var 279%, samanborið við 360% í lok árs 2024.
  • Heildareignir í stýringu námu 441 ma.kr., samanborið við 456 ma.kr. í lok árs 2024.

Ármann Þorvaldsson, forstjóri Kviku:

„Rekstur bankans gekk vel á fyrsta ársfjórðungi, að teknu tilliti til einskiptisliða. Hreinar vaxtatekjur jukust um fjórðung en kostnaður jókst minna og má þar nefna að launakostnaður jókst um tæp 5%. Annar kostnaður jókst hins vegar á milli ára og litaðist meðal annars af kostnaði sem féll til við sölu á TM.

Gengið var endanlega frá sölu á tryggingafélaginu TM til Landsbankans. Stór hluti söluandvirðis TM, sem nam rúmlega 32 milljörðum króna, var greiddur út til hluthafa með arðgreiðslu og kaupum á eigin hlutabréfum. Verulegur hlutur situr hins vegar eftir sem eigið fé í bankanum og mun leggja grunninn að vexti bankans á næstu árum.

Þá var lokið endanlega við kaup á hlut stjórnenda í Ortus Secured Finance og á bankinn nú allt hlutafé í félaginu. Þessi kaup gera okkur kleift að samþætta bresku starfsemina okkar, lækka kostnað, endurfjármagna óhagkvæmari erlendar skuldir og leggja grunninn að frekari vexti í Bretlandi.

Einskiptisliðir vegna þessara viðskipta höfðu umtalsverð áhrif á rekstrartölur bankans á ársfjórðungnum, en ef horft er framhjá þeim liðum, var afkoma af reglubundinni starfsemi fyrir skatta prýðileg.

Mikil aukning var á hreinum vaxtatekjum á milli ára, eða sem nemur rúmlega 25%. Aukninguna má rekja til stækkunar lánabókar, lækkunar fjármagnskostnaðar og tímabundið hárrar lausafjárstöðu í kjölfar sölu á TM, sem lækkaði aftur í kjölfar arðgreiðslu í apríl. Sá hluti söluverðsins, sem eftir situr í bankanum, mun hins vegar skila áfram ávöxtun og því má ætla að vaxtatekjur  verði áfram sterkar.

Þóknanatekjur og fjárfestingatekjur báru merki erfiðrar tíðar á verðbréfamörkuðum og þar varð lítillegur samdráttur á milli ára. Þá hefur gengið ágætlega að halda aftur af kostnaðaraukningu, ef horft er fram hjá einskiptisliðum, og fjöldi starfsfólks er óbreyttur frá síðasta ársfjórðungi.

Kvika er nú í öfundsverðri stöðu til að sækja fram og vaxa, líkt og áætlanir bankans gera ráð fyrir. Bankinn er með afar sterka eiginfjár- og lausafjárstöðu eftir söluna á TM og stöðugar vaxtatekjur hafa komið í stað sveiflukenndari tekna af tryggingastarfsemi. Innviðir bankans, sem hafa verið aðlagaðir að brottför TM úr samstæðunni, eru öflugir og skalanlegir, sem leggur góðan grunn að framsókn okkar á Íslandi og í Bretlandi. “

Kynningarfundur og fjárfestakynning
Kynningarfundur fyrir hluthafa og markaðsaðila verður haldinn fimmtudaginn 8. maí kl. 08:30 í höfuðstöðvum bankans á 9. hæð í Katrínartúni 2, 105 Reykjavík. Fundinum verður jafnframt streymt á íslensku á eftirfarandi vefslóð:

https://kvika.is/kynning-a-uppgjori-3m-2025/

Hægt er að senda tölvupóst með spurningum fyrir fund eða á meðan honum stendur á fjarfestatengsl@kvika.is eða í gegnum Slido appið hér

Meðfylgjandi er fjárfestakynning. Að auki mun upptaka með enskum texta vera gerð aðgengileg á vefsvæði Kviku.