Prenumeration
Beskrivning
| Land | Island | 
|---|---|
| Lista | First North Iceland | 
| Sektor | Informationsteknik | 
| Industri | Programvara | 
Stjórn Klappa Grænna Lausna hf. hefur boðað til hluthafafundar sem haldinn verður föstudaginn 18. nóvember 2022 kl. 15:00 með rafrænum hætti.
Skráning hluthafa á fundinn fer fram á heimasíðu félagsins www.klappir.com og fá þeir þá sendan hlekk á fundinn. Fundurinn fer fram í gegnum fjarfundabúnað þar sem hluthafar geta fylgst með fundarstörfum og tekið þátt í fundinum.
Hluthafar geta látið umboðsmann sækja hluthafafundinn fyrir sína hönd. Umboðsmaður skal leggja fram skriflegt umboð. Hluthafar eða umboðsmenn hluthafa sem hafa hug á því að sækja fundinn eru beðnir um að skrá sig á heimasíðu félagsins eigi síðar en kl. 15:00 þann 16. nóvember 2022.
Ekki hafa verið gerðar breytingar frá áður birtri dagskrá. Meðfylgjandi eru endanlegar tillögur sem lagðar verða fyrir fundinn. Öll gögn vegna hlutahafafundar hafa verið gerð aðgengileg á vefsíðu félagsins www.klappir.com
Nánari upplýsingar veitir Ólöf Ásta Ólafsdóttir fjármálastjóri félagsins (olof@klappir.com)
Viðhengi:
Endanlegar ályktunartillögur stjórnar til hluthafafundar
 
                 
                 
             
             
                    
                    
                    
                     Endanlegar ályktunartillögur stjórnar Klappa Grænna Lausna hf
                
                Endanlegar ályktunartillögur stjórnar Klappa Grænna Lausna hf