Bifogade filer
Beskrivning
Land | Island |
---|---|
Lista | Small Cap Iceland |
Sektor | Fastigheter |
Industri | Förvaltning |
KPMG ehf. er staðfestingaraðili Kaldalóns hf. vegna stöðu fjárhagslegra og sérstakra skilyrða almenns tryggingafyrirkomulags vegna útgáfu skuldabréfa félagsins. Hlutverk staðfestingaraðila er m.a. að kanna og staðfesta útreikninga útgefanda í skýrslu um stöðu á fjárhagslegum og sérstökum skilyrðum útgefanda í tengslum við árs- og árhlutauppgjör sem og í tengslum við viðbótar veðsetningu og/eða skuldsetningu undir almenna tryggingafyrirkomulaginu.
KPMG hefur nú framkvæmt könnun á útreikningum útgefanda á fjárhagslegum kvöðum skuldabréfaflokka útgefanda og almenna tryggingafyrirkomulagsins. Niðurstaða könnunar KPMG staðfestir að útgefin skuldabréf Kaldalóns hf. og almenna tryggingafyrirkomulagið standist allar fjárhagslegar kvaðir þann 31.12.2024.
Einnig hefur KPMG yfirfarið veðsetningu á viðbótareignum inn í almenna tryggingafyrirkomulagið.
Frekari niðurstöður kannana eru í meðfylgjandi viðhengjum.