Í viku 4 árið 2026 keypti Kaldalón hf. eigin hluti að kaupvirði kr. 16.572.968 skv. sundurliðun hér á eftir:
| Dagsetning | Tími | Magn | Verð | Kaupverð | Eigin hlutir eftir viðskipti |
| 19.1.2026 | 09:49:29 | 250.000 | 27,6 | 6.900.000 | 21.402.721 |
| 19.1.2026 | 09:49:29 | 200.000 | 27,4 | 5.480.000 | 21.602.721 |
| 20.1.2026 | 10:09:08 | 150.000 | 27,2 | 4.080.000 | 21.752.721 |
| 20.1.2026 | 15:20:44 | 4.184 | 27,0 | 112.968 | 21.756.905 |
| 604.184 | 16.572.968 |
Viðskiptin eru samkvæmt endurkaupaáætlun Kaldalóns hf. sem tilkynnt var um í Kauphöll Íslands hf. þann 6. janúar 2026. Endurkaup núna samkvæmt áætluninni munu að hámarki ná 9.000.000 hluta, þó þannig að fjárhæð endurkaupanna verði ekki meiri en kr. 250.000.000. Framkvæmd áætlunarinnar hófst miðvikudaginn 7. janúar 2026 og mun áætlun vera í gildi þar til öðru hvoru framangreindra viðmiða um magn eða fjárhæð er náð, en þó ekki lengur en til 2. mars 2026.
Kaldalón hf. átti 21.152.721 eigin hluti fyrir viðskiptin en að þeim loknum 21.756.905 eða sem nemur 2,00% af útgefnum hlutum í félaginu.
Kaldalón hefur keypt samtals 754.184 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 0,07% af útgefnum hlutum í félaginu og nemur heildarkaupverð þeirra kr. 20.652.968.
Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar er í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995, 5. gr. reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 596/2014 um markaðssvik, sem hefur lagagildi hér á landi sbr. lög nr. 60/2021 um aðgerðir gegn markaðssvikum, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052/EB sem hefur að geyma tæknilega skilmála varðandi endurkaupáætlanir.
Nánari upplýsingar veitir,
Jón Þór Gunnarsson, forstjóri
jon.gunnarsson@kaldalon.is