Måndag 16 Juni | 06:56:47 Europe / Stockholm

Kalender

Est. tid*
2023-11-07 - Split KALD 10:1
2021-03-31 - Årsstämma
2021-03-19 - Bokslutskommuniké 2020

Beskrivning

LandIsland
ListaSmall Cap Iceland
SektorFastigheter
IndustriFörvaltning
Kaldalón är ett isländskt fastighetsbolag. Bolagets specialistkompetens återfinns inom fastighetsutveckling, med störst fokus mot förvärv och investeringar i bostadsfastigheter. Störst verksamhet återfinns inom den europeiska marknaden, med privata kunder som dominerande kundbas. En del av projekten utvecklas med bolagets samarbetspartners. Huvudkontoret är beläget i Reykjavik.
2025-04-08 22:38:13

Kaldalón hf. lauk í dag útboði á nýjum skuldabréfum í flokknum KALD 150436 sem gefinn er út undir kr. 30.000.000.000 útgáfuramma félagsins.

Alls bárust tilboð að nafnvirði  1.500.000.000 kr. Ákveðið var að taka tilboðum að nafnvirði 1.500.000.000 kr. á ávöxtunarkröfunni 4,06%.

Skuldabréfaflokkurinn KALD 150436 er verðtryggður á föstum 4% ársvöxtum, til 11 ára en endurgreiðsluferli afborgana og vaxta fylgir 30 ára jafngreiðsluferli. Skuldabréfaflokkurinn er veðtryggður samkvæmt almennu tryggingarfyrirkomulagi.

Afrakstri skuldabréfaútboðsins verður varið til endurfjármögnunar á núverandi skuldum félagsins.

Greiðslu- og uppgjörsdagur er fyrirhugaður þriðjudaginn 15. apríl 2025 og í kjölfarið verður sótt um að skuldabréfin verði tekin til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland hf.

Fyrirtækjaráðgjöf og markaðsviðskipti Landsbankans höfðu umsjón með útgáfu og sölu skuldabréfanna sem og töku skuldabréfanna til viðskipta á aðalmarkað Nasdaq Iceland.

Grunnlýsing og viðauki við grunnlýsinguna hafa verið birt í tengslum við útgáfuramma félagsins. Grunnlýsing útgáfuramma, endanlegir skilmálar og önnur skjöl er varða útgáfu skuldabréfaflokksins og töku skuldabréfanna til viðskipta í Kauphöll verða birt á vefsíðu félagsins; kaldalon.is/fjarfestar

Nánari upplýsingar veitir:

Sigurbjörg Ólafsdóttir, fjármálastjóri, í síma 856 7155 eða sigurbjorg.olafsdottir@kaldalon.is