Onsdag 18 November | 19:56:44 Europe / Stockholm
Est. tid*
2026-11-18 17:35 Kvartalsrapport 2026-Q3
2026-08-26 - Kvartalsrapport 2026-Q2
2026-05-27 - Kvartalsrapport 2026-Q1
2026-04-29 - X-dag ordinarie utdelning ICESEA 0.00 ISK
2026-03-24 - Årsstämma
2026-02-26 - Bokslutskommuniké 2025
2025-11-13 - Kvartalsrapport 2025-Q3
2025-08-27 - Kvartalsrapport 2025-Q2
2025-05-27 - Kvartalsrapport 2025-Q1
2025-04-29 - X-dag ordinarie utdelning ICESEA 0.00 ISK
2025-03-26 - Årsstämma
2025-02-26 - Bokslutskommuniké 2024
2024-11-20 - Kvartalsrapport 2024-Q3
2024-08-22 - Kvartalsrapport 2024-Q2
2024-05-16 - Kvartalsrapport 2024-Q1
2024-04-29 - X-dag ordinarie utdelning ICESEA 0.00 ISK
2024-03-21 - Årsstämma
2024-02-21 - Bokslutskommuniké 2023
2023-11-16 - Kvartalsrapport 2023-Q3
2023-08-30 - Kvartalsrapport 2023-Q2
2023-05-16 - Kvartalsrapport 2023-Q1
2023-04-29 - X-dag ordinarie utdelning ICESEA 0.00 ISK
2023-03-16 - Årsstämma
2023-02-20 - Bokslutskommuniké 2022
2022-11-15 - Kvartalsrapport 2022-Q3
2022-08-17 - Kvartalsrapport 2022-Q2
2022-05-13 - Kvartalsrapport 2022-Q1
2022-04-29 - X-dag ordinarie utdelning ICESEA 0.00 ISK
2022-03-17 - Årsstämma
2022-02-18 - Bokslutskommuniké 2021
2021-11-18 - Kvartalsrapport 2021-Q3
2021-08-26 - Kvartalsrapport 2021-Q2
2021-05-17 - Kvartalsrapport 2021-Q1
2021-03-19 - X-dag ordinarie utdelning ICESEA 0.00 ISK
2021-03-18 - Årsstämma
2021-02-24 - Bokslutskommuniké 2020
2020-11-18 - Kvartalsrapport 2020-Q3
2020-08-26 - Kvartalsrapport 2020-Q2
2020-05-20 - X-dag ordinarie utdelning ICESEA 0.00 ISK
2020-05-19 - Årsstämma
2020-05-18 - Kvartalsrapport 2020-Q1
2020-02-25 - Bokslutskommuniké 2019
2019-11-28 - Kvartalsrapport 2019-Q3
2019-08-28 - Kvartalsrapport 2019-Q2
2019-06-06 - X-dag ordinarie utdelning ICESEA 0.00 ISK
2019-06-05 - Årsstämma
2019-05-18 - Kvartalsrapport 2019-Q1
2019-03-27 - Bokslutskommuniké 2018
2018-08-29 - Kvartalsrapport 2018-Q2
2018-05-17 - Årsstämma
2018-03-21 - Bokslutskommuniké 2017
2017-05-16 - Årsstämma
2017-03-31 - Bokslutskommuniké 2016
2016-08-31 - Kvartalsrapport 2016-Q2
LandIsland
ListaSmall Cap Iceland
SektorHandel & varor
IndustriDagligvaror
Iceland Seafood International är en återförsäljare av fisk och skaldjur. Idag erbjuder bolaget ett brett utbud av råvaror, inkluderat färsk, fryst och rökt fisk, skaldjur, samt färdiga rätter som vidaresäljs under flera varumärken. Bolaget är verksamma inom hela värdekedjan, från fångst, bearbetning till slutlig distribution. Verksamhet innehas på global nivå via etablerade dotterbolag och samarbetspartners, med störst närvaro inom den nordiska – och europeiska marknaden.

All ägardata du vill ha finns i Holdings!

Iceland Seafood International hf: Q3 2026 Uppgjör og fjárfestakynning

2026-11-18 16:50:00

Sterkur tekjuvöxtur og bætt afkoma milli ára á fyrstu níu mánuðum ársins, þrátt fyrir lægri EBITDA

  • Rekstrartekjur fyrstu níu mánuði ársins 2026 námu 56,3 milljörðum króna (€392,7m), sem er 13% aukning frá sama tímabili árið 2025
  • Framlegð nam 4,9 milljörðum króna (€34,4m), samanborið við  4,9 milljarða króna (€34,2m) á fyrstu níu mánuðum árs 2025
  • EBITDA nam 1,8 milljörðum króna (€12,6m), samanborið við 2,0 milljarð króna (€14m) á fyrstu níu mánuðum árs 2025
  • 12 mánaða rúllandi EBITDA nam 3,1 milljörðum króna (€21,4m)
  • Hagnaður fyrir skatta af reglulegri starfsemi nam 604 milljónum króna (€4,2m), samanborið við 582 milljónir króna (€4,1m) á fyrstu níu mánuðum árs 2025
  • Hagnaður eftir skatta nam 449 milljónum króna (€3,1m), samanborið við 364 milljónir króna (€2,5m) á fyrstu níu mánuðum árs 2025
  • Hagnaður á hlut fyrir 9M 2026 er 0,15 ISK, samanborið við 0,12 ISK fyrir 9M 2025
  • Heildareignir námu 41,6 milljörðum króna (€290,3m) í lok september 2026, sem er hækkun um 6,7 milljarða króna (€46,6m) samanborið við sama tíma árið 2025
  • Eiginfjárhlutfall var 29,6% í lok þriðja ársfjórðungs 2026, samanborið við 31,8% ári áður
  • Afkomuspá fyrir árið 2026 gerir nú ráð fyrir hagnaði fyrir skatta af reglulegri starfsemi á bilinu 1,2 til 1,5 milljarða króna (€8,5m til €10,5m)

Heildarsala samstæðunnar á þriðja ársfjórðungi var 17,2 milljarðar ISK (€119,7m) og jókst um 5%  samanborið við fyrra ár. Hagnaður af reglulegri starfsemi fyrir skatta nam 185 milljónir ISK (€1,3m) sem er lækkun um 72 milljónir ISK (€0,5M) frá sama ársfjórðungi 2025. 

Rekstrartekjur starfseminnar í Suður-Evrópu voru 6,6 milljarðar ISK (€45,7m) á þriðja ársfjórðungi, sem er 7% hækkun miðað við sama tímabil árið 2025. Rekstrartekjur námu 22,9 milljörðum ISK (€159,8m) á fyrstu níu mánuðum ársins, sem er 4,7% aukning frá sama tímabili árið 2025. Hagnaður af reglulegri starfsemi fyrir skatta nam 511 milljónum ISK (€3,6m), sem er aukning um 89 milljónir ISK (€0,6m) frá fyrstu níu mánuðum ársins 2025. Tekjur jukust þrátt fyrir minna selt magn.

Rekstrartekjur starfseminnar í Norður-Evrópu á þriðja ársfjórðungi voru 2,3 milljarðar ISK (€16,3m), sem er 16% aukning frá sama ársfjórðungi árið áður. Rekstrartekjur fyrstu níu mánuði ársins voru 7,0 milljarðar ISK (€48,9m), sem er 14,6% aukning frá sama tímabili árið áður. Hagnaður af reglulegri starfsemi fyrir skatta nam 150 milljónum ISK (€1,1m) og var svipaður og á fyrstu níu mánuðum árs 2025.  Framboð á laxi var gott og verð á fyrri hluta ársins lægra en spár gerðu ráð fyrir. Verð á hvítfiski hækkaði hins vegar verulega vegna takmarkaðs framboðs sem kom í veg fyrir afkomubætingu.

Rekstrartekjur sölu- og dreifingarsviðsins á þriðja ársfjórðungi voru 8,7 milljarðar ISK (€60,8m), sem er 2% aukning frá sama tímabili 2025. Rekstrartekjur voru 27,9 milljarðar ISK (€194,9m) á fyrstu níu mánuðum ársins, sem er 20,4% aukning frá sama tímabili 2025. Hagnaður af reglulegri starfsemi fyrir skatta nam 323 milljónum ISK (€2,3m), samanborið við 452 milljónir ISK (€3,2m) á fyrstu níu mánuðum árs 2025. Einskiptisniðurfærsla viðskiptakröfu hjá IS France lækkaði hagnað um €0,5m. Mikil eftirspurn eftir hvítfiski og aukið magn uppsjávarafurða, einkum loðnu og síldar, studdu við söluvöxtinn.

Endurskoðuð afkomuspá fyrir árið 2026 gerir ráð fyrir hagnaði fyrir skatta af reglulegri starfsemi á bilinu 1,2 til 1,5 milljarðar ISK (€8,5m til €10,5m) en hagnaður fyrir skatta á síðasta ári var 1,5 milljarður ISK (€10,6m) . Gert er ráð fyrir áframhaldandi háu þorskverði á árinu þar sem framboð er í sögulegu lágmarki. Uppfærðar spár gera ráð fyrir hækkandi laxaverði á næstu mánuðum.

Viðræður um mögulega sölu á Ahumados Domínguez á Spáni standa yfir samkvæmt tilkynningu þar um en ekki er gert ráð fyrir áhrifum mögulegrar sölu í afkomuspá félagsins. Miðað við núverandi forsendur er verðhugmynd tilboðsgjafa nálægt bókfærðu verði eignarhlutarins. Að því gefnu að rekstur félagsins út árið 2026 verði í samræmi við núverandi áætlanir er gert ráð fyrir að nettóáhrif mögulegrar sölu á afkomu samstæðunnar árið 2026 verði óveruleg. Gangi salan eftir er gert ráð fyrir að söluandvirðið verði nýtt til að lækka skuldir og þar með fjármagnskostnað frá og með árinu 2027, eða til að fjármagna álitleg fjárfestingartækifæri sem styðja við eða styrkja núverandi starfsemi og stefnumörkun samstæðunnar.

Óvissa um alþjóðlegt efnahags- og stjórnmálaumhverfi er áfram mikil og hefur áhrif á flutninga, aðfangakeðjur og verðbólgu á lykilmörkuðum félagsins.

Ægir Páll Friðbertsson, CEO

„Afkoma fyrstu níu mánaða ársins sýnir góðan vöxt í starfsemi Iceland Seafood þrátt fyrir krefjandi markaðsaðstæður. Tekjur jukust um 13% frá fyrra ári og hagnaður eftir skatta nam 449 milljónum ISK (€3.1m ) samanborið við 364 milljónir ISK (€2.5) á sama tímabili í fyrra. EBITDA nam 1,8 milljörðum ISK (€12.6m), sem var undir fyrra ári.

Sala jókst á flestum starfssviðum samstæðunnar. Hagnaður af reglulegri starfsemi fyrir skatta í Suður-Evrópu jókst milli ára. Afkoma starfseminnar í Argentínu var undir væntingum okkar. Í Norður-Evrópu jókst sala um 15% í verðmætum og 3% í magni. Þá var mikill söluvöxtur í sölu- og dreifingarstarfseminni en á móti lækkaði framlegðarhlutfallið.

Þrátt fyrir góðan vöxt í starfsemi samstæðunnar er afkoma tímabilsins undir þeim væntingum sem við höfðum í upphafi árs og munar þar mestu um að rekstur félagsins í Argentínu hefur valdið vonbrigðum og afkoman þar verið töluvert undir markmiðum okkar.

Afkoman í IS France varð jafnframt fyrir neikvæðum áhrifum vegna einskiptisniðurfærslu viðskiptakröfu að fjárhæð um €0,5 milljónir. Þótt slíkt tap sé óheppilegt er mikilvægt að hafa í huga að áhættustýring og stýring viðskiptakrafna innan samstæðunnar er að öðru leyti sterk. Við höfum farið ítarlega yfir þetta tiltekna mál og gripið til viðeigandi ráðstafana til að draga úr líkum á sambærilegu tapi.

Þegar horft er fram á veginn er undirliggjandi rekstur samstæðunnar traustur. Við höfum brugðist við þeim áskorunum sem komið hafa upp á árinu og leggjum áfram áherslu á arðbæran vöxt, agaða áhættustýringu og bætta afkomu í þeim einingum sem hafa verið undir væntingum. Þrátt fyrir krefjandi aðstæður hefur félagið náð miklum söluvexti og bættri afkomu eftir skatta frá fyrra ári. Iceland Seafood stendur á traustum grunni og markmið okkar er áfram að styrkja reksturinn og skapa aukin verðmæti fyrir hluthafa, starfsfólk, birgja og viðskiptavini.“

Fjárfestafundir

Iceland Seafood mun ekki halda fjárfestafundi fyrir fyrsta og þriðja ársfjórðung. Fyrirtækið fagnar öllum fyrirspurnum um fjárhagslegar niðurstöður fjórðungsins, og má senda spurningar á netfangið  investors@icelandseafood.com

Fyrirtækið mun halda fjárfestafundi í kjölfar annars ársfjórðungs (hálfsársniðurstöður) og fjórða ársfjórðungs (árslokaniðurstöður), þar sem stjórnendur kynna og ræða helstu niðurstöður. Dagsetningar fyrir þá fundi má finna á vefsíðu félagsins www.icelandseafood.com/investors/shareholders/

Fyrirtækið býður alla velkomna í heimsókn sem vilja fræðast meira um starfsemina og annað henni tengt.  Sé áhugi fyrir hendi, vinsamlegast hafið samband við Ægi Pál Friðbertsson apf@icelandseafood.com eða Öldu Björk Óskarsdóttir alda@icelandseafood.com

Fyrirvari

Tilkynning þessi er birt og ætluð þátttakendum á evrópskum fjármálamarkaði og ber að líta á hana í því samhengi.

Allar yfirlýsingar varðandi framtíðarsýn í þessari tilkynningu endurspegla núverandi skoðanir stjórnenda á framtíðarviðburðum og niðurstöðu. Það að þessar skoðanir séu byggðar á afstöðu sem stjórnendur telja eðlilegar, er engin trygging fyrir því að atburðir og skoðanir verði að veruleika. Framtíðarsýn felur eðlilega í sér óvissu og áhættu; niðurstöður geta verið frábrugðnar fullyrðingum eða skoðunum sem settar eru fram.

Frekari upplýsingar:

Iceland Seafood International hf.                                                           
http://www.icelandseafood.com/Investors

Ægir Páll Friðbertsson, apf@icelandseafood.com