10:32:44 Europe / Stockholm

Kurs & Likviditet

Kursutveckling och likviditet under dagen för detta pressmeddelande

Kalender

2021-08-26 Kvartalsrapport 2021-Q2
2021-03-26 Årsstämma 2021
2021-03-11 Bokslutskommuniké 2020
2020-06-02 Ordinarie utdelning HAMP 1.15 ISK
2019-04-08 Ordinarie utdelning HAMP 1.00 ISK
2018-04-20 Ordinarie utdelning HAMP 0.75 ISK
2017-04-03 Ordinarie utdelning HAMP 1.00 ISK
2016-03-21 Ordinarie utdelning HAMP 0.84 ISK
2015-03-30 Ordinarie utdelning HAMP 0.67 ISK
2014-03-31 Ordinarie utdelning HAMP 0.54 ISK
2013-07-01 Ordinarie utdelning HAMP 0.29 ISK

Beskrivning

LandIsland
ListaMid Cap Iceland
SektorIndustri
IndustriIndustriprodukter
Hampiðjan är en tillverkare av specialiserade och högkvalitativa rep. Idag erbjuder bolaget produkter och tillhörande tjänster för olika sektorer, från industri, offshore till fiskeindustrin. Produktportföljen inkluderar exempelvis fiskeredskap, rep och nät, remmar samt linor anpassade för tuffa miljöer ute till sjöss. Verksamhet innehas på global nivå, med störst närvaro på den nordiska – och europeiska marknaden.
2021-08-26 19:41:41

Lykilstærðir

Allar fjárhæðir í evrum og samanburðartölur fyrrihluta síðasta árs í sviga.

  • Rekstrartekjur voru 87,6 m€ (80,7 m€).
  • EBITDA af reglulegri starfsemi var 15,7 m€ (14,0 m€).
  • Hagnaður tímabilsins nam 9,0 m€ (7,9 m€.)
  • Heildareignir voru 260,1 m€ (246,6 m€ í lok 2020).
  • Vaxtaberandi skuldir voru 91,8 m€ (90,6 m€ í lok 2020).
  • Eiginfjárhlutfall var 52,0% (52,3% í lok 2020).

Rekstur

Rekstrartekjur samstæðunnar voru 87,6 m€ og hækkuðu um 8,6% frá fyrstu sex mánuðum fyrra árs.

EBITDA félagsins hækkaði um 12,3% á milli tímabila eða úr 14,0 m€ á fyrstu sex mánuðum ársins 2020 í 15,7 m€ á fyrstu sex mánuðum þessa árs.

Hagnaður tímabilsins var 9,0 m€ en var 7,9 m€ fyrir fyrstu sex mánuði ársins 2020.

Efnahagur

Heildareignir voru 260,1 m€ og hafa hækkað úr 246,6 m€ í árslok 2020.
Eigið fé nam 135,2 m€, en af þeirri upphæð eru 13,2 m€ hlutdeild minnihluta í eigin fé dótturfélaga.

Hlutfall eigin fjár, þegar hlutdeild minnihluta er meðtalin, var í lok tímabilsins 52,0% af heildareignum samstæðunnar en var 52,3% í árslok 2020.
Vaxtaberandi skuldir námu í lok tímbils 91,8 m€ samanborið við 90,6 m€ í ársbyrjun.

Árshlutareikningurinn er aðgengilegur á heimasíðu Hampiðjunnar hf., www.hampidjan.is.

Hjörtur Erlendsson, forstjóri:

„Velta samstæðu Hampiðjunnar á fyrri helmingi ársins jókst um 8,6% miðað sama tímabil í fyrra. Aukningin skýrist að hluta til vegna áhrifa Covid-19 faraldursins á tölur fyrra árs. Það ár var samdráttur í tekjum um 5,5% miðað við sama tímabil ársins 2019 en rétt er að hafa í huga að síðasta ár í heild sinni skilaði sömu sölu og árið áður.

Veltuaukning á fyrri hluta þessa árs varð á Írlandi, Kanada, Ástralíu, Færeyjum, Noregi, Bandaríkjunum og Skotlandi en á móti dróst veltan saman á Nýja Sjálandi og Kanaríeyjum og einnig í Danmörku eftir metsölu síðasta árs.  

Mikil umskipti hafa átt sér stað í sölutekjum dótturfélagsins Hampiðjan Ísland eftir erfitt síðasta ár sem einkenndist af loðnuleysi og að annar meginmarkaður fyrirtækisins, Rússland, lokaðist nær alveg fyrir sölum vegna Covid og gengisfalls rúblunnar í fyrra. Nú veiðist aftur loðna við Íslandsstrendur og afar góðar sölur hafa verið til Rússlands í ár.

Starfsemi Hampiðjunnar nær nú til 15 landa og eru starfstöðvarnar orðnar 44. Fjöldi fyrirtækjanna í samstæðunni hjálpar til við að jafna út sölu og afkomu milli ára því þótt samdráttur verði á einu svæði getur orðið aukning á öðrum. Af sölutekjum Hampiðjunnar á síðasta ári komu um 87% erlendis frá.

Hampiðjan hefur ekki farið varhluta af hækkunum á hráefnisverðum frekar en önnur fyrirtæki en mikilvægustu hráefnin eru polyethylene plastefni og nylon þræðir ásamt ofurefnum sem eru með sama styrk og stál. Ofurefnin hafa ekki hækkað í verði en hinsvegar hafa hin tvö hráefnin hækkað mjög mikið í verði og framboð verið takmarkað.
Verðhækkaninarnar hafa þó ekki haft áhrif á reksturinn því tekist hefur að koma þeim inn í vöruverðið með tímabundnum álögum. Vegna takmarkaðs framboðs hefur reynst nauðsynlegt að byggja upp hráefnislagerstöðuna til að tryggja ótruflaða framleiðslu og hefur það gengið vel. Þessi lageraukning ásamt hráefnaverðshækkunum og öðrum hækkunum á aðföngum hefur leitt til að birgðir samstæðunnar hafa aukist en aukning í birgðum er þó í samræmi við aukna veltu á tímabilinu.

Hækkun á útistandandi viðskiptakröfum og samhliða því hækkun á viðskiptaskuldum skýrist alfarið af góðri sölu í lok tímabilsins og eru þessir liðir yfirleitt töluvert hærri á miðju ári en um áramót.

EBITDA samstæðunnar eykst um 12,3% á milli ára og er nú, sem hlutfall af sölu, 18,0% samanborið við 17,4% á fyrrihluta síðastliðins árs. Hagnaður félagsins eykst einnig á milli tímabila og er 9,0 m€ samanborið við 7,9 m€ áður.

Enn eru möguleikar á hagræðingu til staðar innan samstæðunnar sem felast í sölum á efnum frá framleiðslufyrirtækinu Hampidjan Baltic til annara fyrirtækja innan samstæðunnar.

Vélafjárfestingar ársins hafa að mestu snúið að fiskeldisþjónustu og þá helst í N-Noregi og í Færeyjum en á þessum stöðum hefur verið þörf á því að stækka þvottavélalínur fyrir fiskeldiskvíar og vatnshreinsibúnað sem fylgir því. Einnig hefur verið fjárfest í fullkomnari netastrekkitækjum í Hampidjan Baltic í Litháen sem ásamt núverandi búnaði munu tryggja forystu Hampiðjunnar í gæðum nylonneta til fiskveiða“.

Fjárhagsdagatal

Ársuppgjör fyrir árið 2021 - 10. mars 2022

Nánari upplýsingar

Frekari upplýsingar veitir Hjörtur Erlendsson forstjóri í síma 664 3361.

Viðurkenndur ráðgjafi

Viðurkenndur ráðgjafi Hampiðjunnar á Nasdaq First North er PwC.