Lördag 5 Juli | 14:25:32 Europe / Stockholm

Kalender

Est. tid*
2026-05-21 N/A Årsstämma
2026-04-21 N/A Bokslutskommuniké 2025
2026-01-14 17:40 Kvartalsrapport 2025-Q3
2025-10-16 17:40 Kvartalsrapport 2025-Q2
2025-06-26 - Kvartalsrapport 2025-Q1
2025-05-27 - Årsstämma
2025-04-15 - Bokslutskommuniké 2024
2025-01-09 - Kvartalsrapport 2024-Q3
2024-10-17 - Kvartalsrapport 2024-Q2
2024-06-28 - Kvartalsrapport 2024-Q1
2024-05-30 - Årsstämma
2024-04-23 - Bokslutskommuniké 2023
2024-01-11 - Kvartalsrapport 2023-Q3
2023-10-18 - Kvartalsrapport 2023-Q2
2023-06-28 - Kvartalsrapport 2023-Q1
2023-06-01 - Årsstämma
2023-04-27 - Bokslutskommuniké 2022
2023-01-11 - Kvartalsrapport 2022-Q3
2022-10-19 - Kvartalsrapport 2022-Q2
2022-06-30 - Kvartalsrapport 2022-Q1
2022-06-02 - Årsstämma
2022-05-10 - Bokslutskommuniké 2021
2022-01-12 - Kvartalsrapport 2021-Q3
2021-10-19 - Kvartalsrapport 2021-Q2
2021-06-25 - Kvartalsrapport 2021-Q1
2021-06-10 - Årsstämma
2021-05-19 - Bokslutskommuniké 2020
2021-01-14 - Kvartalsrapport 2020-Q3
2020-10-29 - Kvartalsrapport 2020-Q2
2020-06-09 - Årsstämma
2020-05-29 - Kvartalsrapport 2020-Q1
2020-05-18 - Bokslutskommuniké 2019
2020-01-20 - Kvartalsrapport 2019-Q3
2019-10-29 - Kvartalsrapport 2019-Q2
2019-06-28 - Kvartalsrapport 2019-Q1
2019-06-07 - Årsstämma
2019-05-16 - Bokslutskommuniké 2018
2019-01-30 - Kvartalsrapport 2018-Q3
2016-06-06 - X-dag ordinarie utdelning HAGA 1.70 ISK

Beskrivning

LandIsland
ListaMid Cap Iceland
SektorHandel & varor
IndustriDetaljhandel
Hagar är en koncern med verksamhet inom detalj- och livsmedelsbranschen. Koncernen äger, driver och utvecklar flertalet dagligvaruhandelskedjor runtom på den isländska marknaden, samt olika modekedjor och lagerlokaler. Verksamhet utgår ifrån koncernens dotterbolag, som antingen drivs självständigt eller via franschisesamarbete på internationell nivå. Exempel på bolag som återfinns inom koncernen inkluderar Hagkaup, Bonus samt Hýsing.
2025-06-27 17:31:52

Á aðalfundi Haga hf. sem haldinn var þann 27. maí 2025 var samþykkt að heimila félaginu að kaupa á næstu 18 mánuðum, frá samþykkt, hlutabréf í félaginu fyrir allt að 10% af heildarhlutafé félagsins í þeim tilgangi að koma á viðskiptavakt með hluti í félaginu og/eða til að setja upp formlega endurkaupaáætlun. Stjórn Haga hf. hefur á grundvelli fyrrgreindrar samþykktar tekið ákvörðun um framkvæmd endurkaupaáætlunar um kaup á eigin bréfum í þeim tilgangi að lækka útgefið hlutafé félagsins.

Endurkaupin munu að hámarki nema 102.567.019 hlutum í félaginu, þó þannig að fjárhæð endurkaupanna verði aldrei meiri en 500 milljónir króna. Við endurkaup skal hæsta leyfilega endurgjald fyrir hvern hlut ekki vera hærra en sem nemur verði síðustu óháðu viðskipta eða hæsta fyrirliggjandi óháða kauptilboði í þeim viðskiptakerfum þar sem viðskipti með hlutina fara fram, hvort sem er hærra.

Samið hefur verið við Fossa fjárfestingarbanka hf. um að annast endurkaupin. Kaupin hefjast með öfugu tilboðsfyrirkomulagi og samkvæmt hollenskri aðferð, þ.e. öll samþykkt tilboð bjóðast fjárfestum á hæsta verði sem verður tekið. Allir hluthafar Haga hf. geta gert tilboð um að selja bréf sín til félagsins fyrir milligöngu Markaðsviðskipta Fossa fjárfestingarbanka hf. Hagar áskilja sér rétt til að taka eða hafna hvaða tilboði sem er í heild eða að hluta.

Endurkaupin eru í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995, 5. gr. MAR (reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 596/2014 um markaðssvik, sem hefur lagagildi hér á landi sbr. lög nr. 60/2021 um aðgerðir gegn markaðssvikum), sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052/EB sem hefur að geyma tæknilega skilmála varðandi endurkaupaáætlanir.

Tilboðum skal skila til Markaðsviðskipta Fossa fjárfestingarbanka hf., sem einnig svara fyrirspurnum, á netfangið markadsvidskipti@fossar.is merkt „Hagar endurkaup“ fyrir kl. 08:30, mánudaginn 30. júní 2025.

Niðurstöður verða tilkynntar í fréttakerfi Nasdaq Iceland fyrir kl. 9:30, mánudaginn 30. júní 2025. Uppgjörsdagur samþykktra tilboða er miðvikudagurinn 2. júlí 2025.

Hagar hf. eiga 8.075.867 eigin hluti áður en endurkaupin samkvæmt tilboðsfyrirkomulaginu hefjast.


Nánari upplýsingar veita:

Guðrún Eva Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Haga hf., í síma 530-5500 eða á geg@hagar.is

Markaðsviðskipti Fossa fjárfestingarbanka í gegnum netfangið markadsvidskipti@fossar.is