Fredag 22 Maj | 01:37:53 Europe / Stockholm

Kalender

Est. tid*
2027-04-29 N/A Bokslutskommuniké 2026
2027-01-14 09:00 Kvartalsrapport 2026-Q3
2026-10-15 09:00 Kvartalsrapport 2026-Q2
2026-06-30 09:00 Kvartalsrapport 2026-Q1
2026-05-21 N/A Årsstämma
2026-04-21 - Bokslutskommuniké 2025
2026-01-14 - Kvartalsrapport 2025-Q3
2025-10-16 - Kvartalsrapport 2025-Q2
2025-06-26 - Kvartalsrapport 2025-Q1
2025-05-27 - Årsstämma
2025-04-15 - Bokslutskommuniké 2024
2025-01-09 - Kvartalsrapport 2024-Q3
2024-10-17 - Kvartalsrapport 2024-Q2
2024-06-28 - Kvartalsrapport 2024-Q1
2024-05-30 - Årsstämma
2024-04-23 - Bokslutskommuniké 2023
2024-01-11 - Kvartalsrapport 2023-Q3
2023-10-18 - Kvartalsrapport 2023-Q2
2023-06-28 - Kvartalsrapport 2023-Q1
2023-06-01 - Årsstämma
2023-04-27 - Bokslutskommuniké 2022
2023-01-11 - Kvartalsrapport 2022-Q3
2022-10-19 - Kvartalsrapport 2022-Q2
2022-06-30 - Kvartalsrapport 2022-Q1
2022-06-02 - Årsstämma
2022-05-10 - Bokslutskommuniké 2021
2022-01-12 - Kvartalsrapport 2021-Q3
2021-10-19 - Kvartalsrapport 2021-Q2
2021-06-25 - Kvartalsrapport 2021-Q1
2021-06-10 - Årsstämma
2021-05-19 - Bokslutskommuniké 2020
2021-01-14 - Kvartalsrapport 2020-Q3
2020-10-29 - Kvartalsrapport 2020-Q2
2020-06-09 - Årsstämma
2020-05-29 - Kvartalsrapport 2020-Q1
2020-05-18 - Bokslutskommuniké 2019
2020-01-20 - Kvartalsrapport 2019-Q3
2019-10-29 - Kvartalsrapport 2019-Q2
2019-06-28 - Kvartalsrapport 2019-Q1
2019-06-07 - Årsstämma
2019-05-16 - Bokslutskommuniké 2018
2019-01-30 - Kvartalsrapport 2018-Q3
2016-06-06 - X-dag ordinarie utdelning HAGA 1.70 ISK

Beskrivning

LandIsland
ListaMid Cap Iceland
SektorHandel & varor
IndustriDetaljhandel
Hagar är en koncern med verksamhet inom detalj- och livsmedelsbranschen. Koncernen äger, driver och utvecklar flertalet dagligvaruhandelskedjor runtom på den isländska marknaden, samt olika modekedjor och lagerlokaler. Verksamhet utgår ifrån koncernens dotterbolag, som antingen drivs självständigt eller via franschisesamarbete på internationell nivå. Exempel på bolag som återfinns inom koncernen är Hagkaup, Bonus samt Hýsing.

Vem äger bolaget?

All ägardata du vill ha finns i Holdings!

2026-05-21 18:09:59

Meðfylgjandi má sjá niðurstöður aðalfundar Haga hf. sem haldinn var á Hilton Reykjavík Nordica, Suðurlandsbraut 2 í Reykjavík þann 21. maí 2026. Fundurinn hófst kl. 15:00. Tillögur fundarins voru samþykktar svohljóðandi:


1. Ársreikningur (dagskrárliður 2)

Ársreikningur og samstæðureikningur félagsins fyrir liðið starfsár, ásamt skýrslu endurskoðanda, voru lagðir fram og samþykktir samhljóða.

2. Ráðstöfun hagnaðar (dagskrárliður 3)

Tillaga stjórnar Haga hf. um greiðslu arðs sem nemur 50,0% hagnaðar ársins eftir skatta, án áhrifa matsbreytinga og afkomu hlutdeildarfélaga, eða 3,03 krónur á hlut útistandandi hlutafjár, samtals 3.300 milljónir króna, var samþykkt samhljóða. Arðsréttindadagur verður 26. maí 2026, arðleysisdagur 22. maí 2026 og arðgreiðsludagur 2. júní 2026.

3. Þóknun til stjórnarmanna og undirnefnda (dagskrárliður 4)

Tillaga stjórnar Haga hf. um 3,5% hækkun stjórnarlauna var samþykkt, þ.e. stjórnarformaður fær greitt kr. 855.000,- á mánuði, varaformaður kr. 629.000,- á mánuði og stjórnarmenn kr. 427.500,- á mánuði. Samþykkt var að laun í undirnefndum stjórnar hækki einnig um 3,5%. Laun í endurskoðunarnefnd verða kr. 114.000,- á mánuði og laun formanns tvöföld upphæð. Laun í starfskjaranefnd verða kr. 98.500,- á mánuði og laun formanns verða tvöföld upphæð. Þá var samþykkt að nefndarmönnum tilnefningarnefndar verði greitt skv. reikningi 28 þús. kr. pr./klst.

4. Starfskjarastefna (dagskrárliður 5)

Tillaga stjórnar um óbreytta starfskjarastefnu var samþykkt samhljóða.

5. Kosning þriggja fulltrúa í tilnefningarnefnd (dagskrárliður 6)

Samþykkt var samhljóða tillaga stjórnar Haga að þrír eftirtaldir fulltrúar verðir kjörnir í tilnefningarnefnd félagsins.

  • Björn Ágúst Björnsson, verkfræðingur
  • Kristjana Milla Snorradóttir, mannauðsstjóri
  • Tryggvi Þór Haraldsson, fyrrv. forstjóri

6. Kosning stjórnar og endurskoðanda (dagskrárliður 7)

Eftirtaldir aðilar voru kosnir í stjórn félagsins til næsta aðalfundar:

  • Einar Örn Einarsson, f. 1977
  • Eiríkur S. Jóhannsson, f. 1968
  • Eva Bryndís Helgadóttir, f. 1972
  • Orri Hauksson, f. 1971
  • Sigríður Olgeirsdóttir, f. 1960

Fimm voru í framboði til stjórnar félagsins og var því sjálfkjörið. Fjórir af frambjóðendum skipuðu áður stjórn félagsins.

Samþykkt var samhljóða að endurskoðunarskrifstofan PricewaterhouseCoopers ehf., kt. 690681-0139, verði endurskoðandi félagsins fyrir komandi rekstrarár.

7. Kosning um utanaðkomandi nefndarmann í endurskoðunarnefnd (dagskrárliður 8)

Fyrir aðalfundi lá tillaga frá stjórn Haga hf. um að Hannes Ágúst Jóhannesson, löggiltur endurskoðandi, yrði kosinn sem utanaðkomandi nefndarmaður í endurskoðunarnefnd. Var tillaga stjórnar samþykkt samhljóða.

8. Ákvörðun um heimild stjórnar til kaupa á eigin bréfum (dagskrárliður 9)

Fyrir aðalfundi lá tillaga frá stjórn Haga hf. um að félaginu verði heimilt að kaupa á næstu 18 mánuðum allt að 10% af heildarhlutafé félagsins. Var þessarar heimildar óskað annars vegar í þeim tilgangi að setja upp formlega endurkaupaáætlun, þ.m.t. með öfugu tilboðsfyrirkomulagi, í samræmi við ákvæði 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/2014, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052, samanber lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021. Hins vegar var heimildar óskað til að setja upp viðskiptavakt eða til að uppfylla skuldbindingar félagsins samkvæmt kaupréttarsamningum í samræmi við kaupréttaráætlanir félagsins. Tillagan var samþykkt samhljóða.