Beskrivning
| Land | Island |
|---|---|
| Lista | Mid Cap Iceland |
| Sektor | Finans |
| Industri | Investeringar |
Vem äger bolaget?
All ägardata du vill ha finns i Holdings!
Í 49. viku 2025 keypti Festi alls 103.774 eigin hluti fyrir 34.425.420 kr. eins og hér segir:
| Vika | Dagsetning | Tími | Magn | Verð | Kaupverð |
| Vika 49 | 4.12.2025 | 11:32 | 53.774 | 330,00 | 17.745.420 |
| Vika 49 | 5.12.2025 | 14:56 | 10.000 | 332,00 | 3.320.000 |
| Vika 49 | 5.12.2025 | 14:59 | 40.000 | 334,00 | 13.360.000 |
Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar er í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/214, framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052, samanber lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021.
Fyrir kaupin þá átti Festi 2.746.226 hluti eða 0,88% af hlutafé félagsins. Festi hefur nú keypt samtals 103.774 eigin hluti fyrir 34.425.420 kr. og á í dag 2.850.000 hluti sem samsvarar 0,91% af hlutafé félagsins. Um er að ræða tilkynningu um kaup Festi á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun sem var tilkynnt um 3. desember 2025 í tilkynningu til Nasdaq Iceland. Áætlað er að kaupa að hámarki 2.500.000 eigin hluti í félaginu eða sem samsvarar 0,80% af útgefnu hlutafé, þó þannig að fjárhæð endurkaupanna verði aldrei meiri en 825 milljónir króna að kaupverði.
Nánari upplýsingar veitir Magnús Kr. Ingason, framkvæmdastjóri fjármála- og rekstrarsviðs Festi hf. (mki@festi.is).