Í 2. viku 2026 keypti Festi alls 195.000 eigin hluti fyrir 63.850.000 kr. eins og hér segir:
| Vika | Dagsetning | Tími | Magn | Verð | Kaupverð |
| Vika 2 | 5.1.2025 | 12:07 | 35.000 | 326,00 | 11.410.000 |
| Vika 2 | 6.1.2025 | 14:13 | 40.000 | 326,00 | 13.040.000 |
| Vika 2 | 7.1.2026 | 14:13 | 40.000 | 325 | 13.000.000 |
| Vika 2 | 9.1.2026 | 13:13 | 80.000 | 330 | 26.400.000 |
Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar er í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/214, framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052, samanber lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021.
Fyrir kaupin þá átti Festi 3.580.000 hluti eða 1,15% af hlutafé félagsins. Festi hefur nú keypt samtals 1.028.774 eigin hluti fyrir 336.395.420 kr. og á í dag 3.775.000 hluti sem samsvarar 1,21% af hlutafé félagsins. Um er að ræða tilkynningu um kaup Festi á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun sem var tilkynnt um 3. desember 2025 í tilkynningu til Nasdaq Iceland. Áætlað er að kaupa að hámarki 2.500.000 eigin hluti í félaginu eða sem samsvarar 0,80% af útgefnu hlutafé, þó þannig að fjárhæð endurkaupanna verði aldrei meiri en 825 milljónir króna að kaupverði.
Nánari upplýsingar veitir Magnús Kr. Ingason, framkvæmdastjóri fjármála- og rekstrarsviðs Festi hf. (mki@festi.is).