Onsdag 17 December | 03:32:41 Europe / Stockholm
2025-10-23 18:00:37

Festi birtir uppgjör sitt fyrir 3. ársfjórðung 2025 eftir lokun markaða fimmtudaginn 30. október næstkomandi.

Afkomufundur með markaðsaðilum 31. október kl. 8:30.

Afkomufundur fyrir markaðsaðila verður haldinn föstudaginn 31. október 2025 kl. 8:30 í höfuðstöðvum félagsins að Dalvegi 10 – 14 í Kópavogi. Á fundinum munu Ásta S. Fjeldsted, forstjóri Festi, og Magnús Kr. Ingason, framkvæmdastjóri fjármála- og rekstrarsviðs Festi, kynna afkomu samstæðunnar á þriðja ársfjórðungi og svara spurningum.

Fundinum verður einnig streymt beint á vefsíðu félagsins þar sem skráning á fundinn fer jafnframt fram: https://www.festi.is/tenglar/uppgjor-3f-2025. Þátttakendur sem fylgjast með rafrænt geta spurt spurninga á meðan á fundi stendur með því að senda tölvupóst á netfangið fjarfestatengsl@festi.is. Spurningum verður svarað að kynningu lokinni.

Kynningarefni vegna fundarins verður hægt að nálgast að honum loknum á heimasíðu Festi: https://www.festi.is/fjarhagsupplysingar.