Festi hf.: Birting uppgjörs 1F 2026 þann 29. apríl 2026 og afkomufundur þann 30. apríl
Festi birtir uppgjör sitt fyrir 1F 2026 eftir lokun markaða miðvikudaginn 29. apríl næstkomandi.
Afkomufundur með markaðsaðilum 30. apríl kl. 8:30.
Afkomufundur fyrir markaðsaðila verður haldinn fimmtudaginn 30. apríl 2026 kl. 8:30 í höfuðstöðvum félagsins að Dalvegi 10 – 14 í Kópavogi. Á fundinum munu Ásta S. Fjeldsted, forstjóri Festi, og Magnús Kr. Ingason, framkvæmdastjóri fjármála- og rekstrarsviðs Festi, kynna afkomu samstæðunnar og svara spurningum.
Fundinum verður einnig streymt beint á vefsíðu félagsins þar sem skráning á fundinn fer jafnframt fram: https://www.festi.is/tenglar/uppgjor-1f-2026. Þátttakendur sem fylgjast með rafrænt geta spurt spurninga á meðan á fundi stendur með því að senda tölvupóst á netfangið fjarfestatengsl@festi.is. Spurningum verður svarað að kynningu lokinni.
Kynningarefni vegna fundarins verður hægt að nálgast að honum loknum á heimasíðu Festi: https://www.festi.is/fjarhagsupplysingar.