Torsdag 29 Oktober | 00:00:20 Europe / Stockholm
Est. tid*
2027-02-03 N/A Bokslutskommuniké 2026
2026-10-28 10:30 Kvartalsrapport 2026-Q3
2026-07-28 - Kvartalsrapport 2026-Q2
2026-05-07 - Kvartalsrapport 2026-Q1
2026-03-05 - Årsstämma
2026-03-04 - X-dag ordinarie utdelning FESTI 7.00 ISK
2026-02-05 - Bokslutskommuniké 2025
2025-10-30 - Kvartalsrapport 2025-Q3
2025-07-29 - Kvartalsrapport 2025-Q2
2025-04-29 - Kvartalsrapport 2025-Q1
2025-03-05 - Årsstämma
2025-03-04 - X-dag ordinarie utdelning FESTI 4.50 ISK
2025-02-05 - Bokslutskommuniké 2024
2024-10-30 - Kvartalsrapport 2024-Q3
2024-07-31 - Kvartalsrapport 2024-Q2
2024-04-23 - Kvartalsrapport 2024-Q1
2024-03-21 - X-dag ordinarie utdelning FESTI 3.00 ISK
2024-03-20 - Årsstämma
2024-02-07 - Bokslutskommuniké 2023
2023-10-25 - Kvartalsrapport 2023-Q3
2023-07-27 - Kvartalsrapport 2023-Q2
2023-05-03 - Kvartalsrapport 2023-Q1
2023-03-22 - X-dag ordinarie utdelning FESTI 3.00 ISK
2022-03-02 - Årsstämma
2022-02-04 - Bokslutskommuniké 2021
2021-10-28 - Kvartalsrapport 2021-Q3
2021-07-28 - Kvartalsrapport 2021-Q2
2021-04-28 - Kvartalsrapport 2021-Q1
2021-03-22 - Årsstämma
2021-02-24 - Bokslutskommuniké 2020
2020-03-23 - Årsstämma
2019-03-22 - X-dag ordinarie utdelning FESTI 0.00 ISK
2019-03-21 - Årsstämma
2019-02-27 - Bokslutskommuniké 2018
2016-03-17 - X-dag ordinarie utdelning FESTI 3.00 ISK
LandIsland
ListaMid Cap Iceland
SektorFinans
IndustriInvesteringar
Festi är ett holdingbolag. Inom koncernen erbjuds ett brett utbud av konsultlösningar riktade mot affärsutveckling. Specialistkompetens återfinns huvudsakligen inom finans och riskhantering, där kunderna består av små- och medelstora företag runtom den isländska marknaden. Kunderna är verksamma inom ett flertal sektorer, från energi- och livsmedelsindustrin, till fastighetssektorn.

All ägardata du vill ha finns i Holdings!

Festi hf.: Afkoma á 3. ársfjórðungi 2026

2026-10-28 17:44:37

Tekjuvöxtur og aðhald í kostnaði við krefjandi ytri aðstæður

Helstu niðurstöður 3. ársfjórðungs 2026

  • Vöru- og þjónustusala nam 51.147 millj. kr. og jókst um 8,6% milli ára.
  • Framlegð af vöru- og þjónustusölu nam 11.901 millj. kr. og lækkaði um 1,3% milli ára.
  • Framlegðarstig nam 23,3% og lækkaði um 2,3 p.p. milli ára, en um 0,8 p.p. án áhrifa gengis, eldsneytisverðs og breytinga á opinberum gjöldum á eldsneyti.
  • EBITDA nam 4.988 millj. kr. og lækkaði um 6,2% milli ára.
  • Hagnaður nam 2.309 millj. kr. og lækkaði um 12,9% milli ára. Arðsemi eigin fjár nam 12,2%.
  • Handbært fé frá rekstri nam 4.839 millj. kr. og lækkaði um 1.825 millj. kr. milli ára.
  • Nettó vaxtaberandi skuldir, að meðtöldum leiguskuldum, námu 39.892 millj. kr. og hafa hækkað um 6.945 millj. kr. frá áramótum, einkum vegna fjárbindingar tengdrar hærra eldsneytisverði, fjárfestinga, arðgreiðslu og kaupa á eigin bréfum.
  • Eigið fé nam 48.229 millj. kr. og eiginfjárhlutfall var 40,2% (41,2% í árslok 2025). Félagið keypti eigin bréf fyrir 921 millj. kr. á fjórðungnum.
  • Gengið var frá kaupum á öllu hlutafé Skjáauglýsinga ehf. og eftirstandandi 30% af hlutafé í Local ehf. Kaupverð nam 564 millj. kr. að frádregnu handbæru fé félaganna á kaupdegi en getur hækkað um allt að 300 millj. kr. háð afkomu Skjáauglýsinga 2027 og 2028. Áætluð EBITDA félaganna er um 150 millj. kr. á ári og verða þau hluti af samstæðunni frá 1. október 2026.

Ásta S. Fjeldsted, forstjóri:

„Rekstur samstæðunnar á þriðja ársfjórðungi var í heildina viðunandi í ljósi krefjandi ytri aðstæðna, þótt afkoma hafi verið misjöfn eftir rekstrareiningum og í heild undir áætlun. Tekjur jukust um 8,6% milli ára en framlegð lækkaði um 1,3%. Þvert á samstæðuna fjölgaði afgreiðslum um 1,5% og seldum vörum um 4,7%.

Átökin í Mið-Austurlöndum hafa skapað verulega óvissu. Verð á hrávörum, þar á meðal olíu, hefur hækkað mikið og sveiflur aukist vegna ótta við truflanir í aðfangakeðjum. Eins og búist var við hélst því áfram þrýstingur á framlegð af eldsneytissölu á fjórðungnum, þar sem ekki var svigrúm til að velta hækkunum að fullu út í verðlag. Framlegð af eldsneytis- og rafmagnssölu lækkaði um 622 millj. kr. milli ára. Fækkun ferðamanna milli ára dró jafnframt úr sölu þvert á starfsþætti og minni eftirspurn á raftækjamarkaði leiddi til 3,5% lækkunar á framlegð af raftækjasölu. Krónan hélt áfram sókn sinni á dagvörumarkaði og nam EBITDA á fjórðungnum 2.091 millj. kr. og jókst um 15,1% milli ára.  Ágætur gangur var í öðrum vöruflokkum.

Verðbólga er enn mikil, um 6%, og hefur áhrif á vöruverð og rekstrarkostnað í öllum starfsþáttum. Þrátt fyrir það hefur samstæðunni tekist vel að halda aftur af kostnaði og hækkuðu laun og annar rekstrarkostnaður aðeins um 3,2% milli ára.

Helstu fréttir af starfseminni:

  • Krónan: Afgreiðslum í verslunum fjölgaði um 4,4% milli ára og seldum vörum um 5,6%. Afgreiðslum í Snjallverslun fjölgaði um 34,3% og seldum vörum þar um 38,5%. Krónan reið á vaðið í miðri umræðu um forsenduákvæði kjarasamninga og hratt af stað keðju viðbragða með því að frysta verð á 647 vörum frá 24. september til a.m.k. ársloka. Krónan kynnti einnig nýja fyrirtækjaþjónustu í gegnum Snjallverslun og undirbýr nú opnun 27. verslunar sinnar á Höfn í Hornafirði síðar á fjórða ársfjórðungi.
  • ELKO: Raftækjamarkaðurinn dróst saman um 3% milli ára samkvæmt Meniga tölum en markaðshlutdeild ELKO hélt áfram að aukast. Vefverslun ELKO átti mjög sterkan fjórðung, þar sem velta jókst um 15% milli ára og framlegð jókst einnig myndarlega. Þá verða Snjallgreiðslur ELKO, sem hingað til hafa eingöngu verið í boði í vefverslun, teknar upp í öllum verslunum félagsins í nóvember.
  • Lyfja: Afgreiðslum fjölgaði um 1,2% milli ára og seldum vörum um 2,3%, og velta í stafrænum söluleiðum jókst um 14%. Lyfja opnaði nýtt apótek við Norðurhellu í Hafnarfirði 11. september. Apótekið er 45. þjónustueining Lyfju og er í sama húsnæði og Krónan, nærri stórri og vaxandi íbúðabyggð. Lyfja samdi einnig við Sjúkratryggingar Íslands um bólusetningar forgangshópa og efldi lyfjaskömmtunarþjónustu sína – hvort teggja skref í átt að bættri heilbrigðisþjónustu við heimili landsins.
  • N1: Hátt innkaupsverð á eldsneyti hélt áfram að þrýsta á framlegð og seldum lítrum fækkaði um 2,8% milli ára, einkum vegna minni sölu til stórnotenda. Á móti hefur rekstur bílaþjónustu og orkusviðs N1 batnað verulega og EBITDA beggja sviða meira en tvöfaldast milli ára á fyrstu níu mánuðum ársins. Jafnframt gekk N1, sem eignaðist 70% hlut í Local ehf. í febrúar 2026, frá kaupum á eftirstandandi 30% hlut á fjórðungnum og á nú allt hlutafé félagsins. Local rekur fimm veitingastaði á höfuðborgarsvæðinu og býður upp á hollan skyndibita, salöt, skálar og vefjur. Með fullu eignarhaldi skapast tækifæri til að efla rekstur Local enn frekar og nýta betur innviði, innkaup og þjónustunet samstæðunnar, í takt við áherslu N1 á frekari uppbyggingu veitingaþjónustu.
  • Skjáauglýsingar nýr hluti af samstæðu Festi: Skjáauglýsingar ehf. rekur eitt stærsta innandyra auglýsinganet landsins og selur auglýsingapláss á stafrænum skjám á yfir 100 stöðum um land allt, meðal annars í íþróttamannvirkjum, sundlaugum, líkamsræktarstöðvum og á golfvöllum. Kaupin styðja við stefnu Festi um að sækja ný tækifæri með þróun tekjulinda og betri nýtingu innviða og eigna samstæðunnar. Skjáauglýsingar eiga sér góð vaxtartækifæri, bæði innan og utan samstæðunnar, og telur Festi að kaupin geti skapað verulegt virði fyrir auglýsendur, samstarfsaðila og samstæðuna í heild.

Horfur fyrir fjórða ársfjórðung eru góðar. Við munum áfram standa vörð um grunnrekstur samstæðunnar og gæta aðhalds í kostnaði en um leið fjárfesta í innviðum, tækniþróun og nýjum þjónustulausnum. Búist er við að allir starfsþættir bæti afkomu sína nema Lyfja, sem finnur vel fyrir kostnaðarhækkunum síðustu ára á sama tíma og álagning lyfja, sem ákvörðuð er af hinu opinbera, og hefur ekki breyst frá 1. október 2023.

Heilt yfir stendur félagið traustum fótum og er vel í stakk búið til frekari vaxtar. EBITDA afkomuspá fyrir árið 2026 er óbreytt og nemur 16,0 - 16.5 ma. kr.“, segir Ásta S. Fjeldsted, forstjóri Festi.