Bifogade filer
Beskrivning
Land | Island |
---|---|
Lista | Mid Cap Iceland |
Sektor | Fastigheter |
Industri | Förvaltning |
Eftirtalin hafa boðið sig fram í tilnefningarnefnd Eikar fasteignafélags hf., en framboðsfrestur rann út 5. apríl 2025:
- Anton Reynir Hafdísarson
- Áslaug Eva Björnsdóttir
- Íris Björk Hreinsdóttir
- Sigurður Ólafsson
Samþykktir félagsins gera ráð fyrir að tveir nefndarmenn séu kjörnir af hluthöfum. Stjórn tilnefndi Sigrúnu Rögnu Ólafsdóttur að loknum aðalfundi 2024 í tilnefningarnefnd til tveggja ára. Nánari upplýsingar um frambjóðendur eru í viðhengi.
Fundurinn verður haldinn kl. 14:00 fimmtudaginn 10. apríl 2025 að Sjálandi, Ránargrund 4, 210 Garðabæ, en atkvæðagreiðslur verða einungis rafrænar.
Hluthafar eða umboðsmenn hluthafa sem hafa hug á því að taka þátt í fundinum eru minntir á að skrá sig tímanlega á heimasíðunni www.lumiconnect.com/meeting/eik2025 og ekki seinna en kl. 16:00 miðvikudaginn 9. apríl 2025. Aðstoð við skráningu á aðalfundinn er hægt að fá með því að senda tölvupóst á stjornun@eik.is