Bifogade filer
Beskrivning
Land | Island |
---|---|
Lista | Mid Cap Iceland |
Sektor | Fastigheter |
Industri | Förvaltning |
Aðalfundur Eikar fasteignafélags hf. verður haldinn að Sjálandi, Ránargrund 4, 210 Garðabæ og með rafrænum hætti kl. 14:00, fimmtudaginn 10. apríl 2025.
Ekki hafa verið gerðar breytingar á dagskrá eða tillögum sem birtar voru með tilkynningu félagsins 19. mars 2025. Fundargögn eru á heimasíðu félagsins á slóðinni: http://eik.is/hluthafar.
Hluthafar eða umboðsmenn hluthafa sem hafa hug á því að taka þátt í fundinum eru minntir á að skrá sig tímanlega á heimasíðunni www.lumiconnect.com/meeting/eik2025 og ekki seinna en kl. 16:00 miðvikudaginn 9. apríl 2025. Opnað verður fyrir skráningu miðvikudaginn 2. apríl 2025.
Aðstoð við skráningu á aðalfundinn er hægt að fá með því að senda tölvupóst á stjornun@eik.is. Hluthöfum eða umboðsmönnum hluthafa sem hafa hug á að taka til máls á fundinum er boðið að upplýsa um það með tölvupósti á sama netfang.