Lördag 3 Januari | 01:34:51 Europe / Stockholm
2025-10-27 11:48:08

Eik fasteignafélag hf. mun birta uppgjör fyrir fyrstu níu mánuði ársins 2025 eftir lokun markaða miðvikudaginn 29. október nk. Kynningarfundur verður haldinn á skrifstofu félagsins að Smáratorgi 3, 18. hæð, 30. október nk. klukkan 8:30. Hreiðar Már Hermannsson, forstjóri og Lýður H. Gunnarsson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs, munu kynna uppgjörið og svara spurningum að lokinni kynningu. Boðið verður upp á léttan morgunverð frá klukkan 8:00.

Fundinum verður einnig streymt á netinu og fer skráning á rafræna fundinn fram hér:https://vimeo.com/event/5470381/280f835425

Markaðsaðilar geta sent spurningar fyrir fundinn á netfangið fjarfestatengsl@eik.is.