Lördag 3 Januari | 01:32:39 Europe / Stockholm
2025-05-05 13:33:47

Eik fasteignafélag hf. mun birta árshlutauppgjör sitt fyrir fyrsta ársfjórðung 2025 eftir lokun markaða fimmtudaginn 8. maí nk. Kynningarfundur verður haldinn á Vox Club á 1. hæð Hilton Reykjavík Nordica föstudaginn 9. maí nk. klukkan 8:30. Hreiðar Már Hermannsson, forstjóri og Lýður H. Gunnarsson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs, munu kynna uppgjörið og svara spurningum að lokinni kynningu. Boðið verður upp á léttan morgunverð frá klukkan 8:00.

Fundinum verður einnig streymt á netinu og verður tengill vegna þess sendur út samhliða uppgjöri.

Markaðsaðilar geta sent spurningar fyrir fundinn á netfangið fjarfestatengsl@eik.is.