Bifogade filer
Beskrivning
Land | Island |
---|---|
Lista | Mid Cap Iceland |
Sektor | Fastigheter |
Industri | Förvaltning |
Stjórn Eikar fasteignafélags hf. auglýsir hér með eftir framboðum og tillögum hluthafa að frambjóðendum til tveggja nefndarsæta í tilnefningarnefnd félagsins vegna aðalfundar þess sem stendur til að halda fimmtudaginn 10. apríl 2025. Tveir af núverandi nefndarmönnum hyggjast ekki bjóða sig fram í tilnefningarnefnd félagsins.
Nefndina skipa þrír einstaklingar og tilnefnir stjórn félagsins einn þeirra. Skulu nefndarmenn vera óháðir félaginu og daglegum stjórnendum þess, sbr. grein 2.3. í starfsreglum tilnefningarnefndar félagsins.
Tilkynning um framboð skal vera á sérstöku eyðublaði sem félagið lætur í té og fylgir auglýsingu þessari, einnig er unnt að nálgast eyðublaðið á heimasíðu félagsins https://www.eik.is/hluthafar/.
Tillögur hluthafa og framboð skulu send á netfangið stjornun@eik.is sem fyrst en þó eigi síðar en 5 sólarhringum fyrir fund, þ.e. fyrir kl. 14:00 laugardaginn 5. apríl 2025.
Upplýsingar um framboð í tilnefningarnefnd verða birtar á heimasíðu félagsins eigi síðar en 2 sólarhringum fyrir hluthafafund, í samræmi við starfsreglur nefndarinnar.