Beskrivning
| Land | Island |
|---|---|
| Lista | Mid Cap Iceland |
| Sektor | Handel & varor |
| Industri | Dagligvaror |
Vem äger bolaget?
All ägardata du vill ha finns i Holdings!
Guðmundur Kristjánsson, forstjóri:
„Afkoman á fyrsta ársfjórðungi þessa árs var góð. Ástæðurnar eru að skip félagsins veiddu vel af loðnu eða 26 þúsund tonn í samanburði við 850 tonn á sama tíma í fyrra og einnig er verð á bolfiski hátt á alþjóðamörkuðum í dag. Á móti kemur aukinn framleiðslukostnaður hér innanlands sem skýrist meðal annars af háu gengi krónunnar og hækkun skatta og gjalda.
Horfur framundan eru blendnar. Við getum búist við að verð á bolfiski verði áfram hátt en óvissa ríkir um úthlutun aflaheimilda fyrir flestar fisktegundir á næsta ári þar sem Hafró hefur enn ekki skilað tillögum þar um til atvinnuvegaráðherra. Þó liggur fyrir að heimildir okkar í Brimi til veiða á makríl á þessu ári hafa verið skornar niður um 70% frá fyrra ári.
Eins og fyrri daginn skiptast á skin og skúrir í rekstri félagsins. Við þurfum í senn að nýta vel meðbyr þegar hann gefst en einnig vera vel undirbúin þegar á móti blæs.“
Starfsemin á 1F2026
Bolfiskssvið Brims hefur gengið í gegnum nokkrar breytingar frá fyrra ári. Á fyrsta ársfjórðungi 2026 var ein bolfiskvinnsla starfrækt, samanborið við tvær á sama tímabili árið áður. Jafnframt voru fimm skip við veiðar, en þau voru sjö á fyrsta ársfjórðungi 2025. Heildarafli skipanna nam um 10 þúsund tonnum á tímabilinu, samanborið við um 14 þúsund tonn árið áður. Veiðar gengu almennt vel, með aukinni veiði á gullkarfa en veiði á ufsa og gulllaxi dróst saman. Norðurgarður tók á móti 5.600 tonnum af hráefni á tímabilinu, samanborið við 6.200 tonn í Norðurgarði og Kambi á sama tíma árið á undan. Verð á afurðum hélt áfram að styrkjast á tímabilinu.
Uppsjávarveiðar Brims hófust í janúar á kolmunna í færeysku lögsögunni líkt og fyrri ár, henni lauk undir lok janúarmánaðar og alls voru veidd um 13 þúsund tonn. Kolmunnaveiðum lauk fyrr en undanfarin ár vegna loðnuveiða. Fyrsta loðnufarmi ársins var landað á Vopnafirði 4. febrúar og lauk vertíðinni með löndun á Akranesi um miðjan mars. Alls voru veidd um 26 þúsund tonn af loðnu.
Helstu atriði úr fjárhagsuppgjöri 1F 2026
- Vörusala var 121,3 m€ á fjórðungnum samanborið við 101,4 m€ á fyrsta fjórðungi 2025
- Hagnaður var 23,9 m€ á fjórðungnum samanborið við 7,6 m€ á fyrsta fjórðungi 2025
- EBITDA var 34,2 m€ og EBITDA hlutfall 28,2%
- Eignir hækkuðu um 10,8 m€ frá áramótum og voru 1.008 m€ í lok tímabilsins
- Eigið fé þann 31. mars 2026 var 519 m€ og eignfjárhlutfall 51,5%
Rekstur
Seldar vörur námu á 1F 2026 121,3 m€ samanborið við 101,4 m€ á 1F 2025.
Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir (EBITDA) var 34,2 m€ eða 28,2% af rekstrartekjum, en var 14,9 m€ eða 14,7% á 1F 2025.
Nettó fjármagnskostnaður var 3,0 m€ en var 5,6 m€ á 1F 2025. Áhrif hlutdeildarfélaga voru 2,9 m€, en voru 4,2 m€ á 1F 2025.
Hagnaður fyrir tekjuskatt var 29,1 m€, samanborið við 8,7 m€ á 1F 2025. Tekjuskattur nam 5,1 m€, en var 1,2 m€ á 1F 2025. Hagnaður tímabilsins varð því 23,9 m€ en var 7,6 m€ á 1F 2025.
Efnahagur
Heildareignir félagsins námu 1.008 m€ í lok 1F 2026. Þar af voru fastafjármunir 797 m€ og veltufjármunir 212 m€.
Eigið fé nam 519 m€ og var eiginfjárhlutfall 51,5%, en var 52,2% í lok árs 2025. Heildarskuldir félagsins voru 489 m€ í lok fjórðungsins og hækkuðu um 13 m€ frá áramótum. Arður sem samþykktur var á aðalfundi og greiddur þann 30. apríl hefur verið skuldfærður í efnahags-reikningi 31. mars 2026.
Sjóðstreymi
Handbært fé frá rekstri nam 23,4 m€ á fyrsta fjórðungi ársins, en var 22,9 m€ á fyrsta fjórðungi 2025. Fjárfestingar-hreyfingarvoru neikvæðar um 0,6 m€ og fjármögnunarhreyfingar voru neikvæðar um 20,9 m€. Að teknu tilliti til gengisbreytinga hækkaði handbært fé um 2,6 m€ og var 74,1 m€ í lok tímabilsins.
Meginniðurstöður færðar til íslenskra króna
Séu niðurstöður rekstrarreiknings reiknaðar til íslenskra króna á meðalgengi fyrsta fjórðungs árins 2026 (1 evra = 145,03 ísk) voru tekjur 17,6 milljarðar króna, EBITDA 5,0 milljarðar og hagnaður 3,5 milljarðar. Séu niðurstöður efnahagsreiknings reiknaðar til íslenskra króna á gengi 31. mars 2026 (1 evra = 143,6 ísk) voru eignir samtals 144,8 milljarðar króna, skuldir 70,3 milljarðar og eigið fé 74,5 milljarðar.
Hluthafar
Lokaverð hlutabréfa 31. mars 2026 var 77,0 kr. á hlut og var markaðsvirði félagsins þá 148,3 milljarðar króna. Fjöldi hluthafa var 1.612.
Samþykkt árshlutareiknings
Árshlutareikningurinn var samþykktur á stjórnarfundi Brims hf. 26. maí 2026. Árshlutareikningurinn er í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla (IFRS – International Financial Reporting Standards). Árshlutareikningurinn hefur hvorki verið kannaður né endurskoðaður af endurskoðendum félagsins.
Brim hf.
Brim er öflugt sjávarútvegsfyrirtæki sem starfar í sátt við samfélagið og umhverfið. Við stuðlum að verðmætasköpun í sjávarútvegi með vöruþróun, tæknilausnum og öflugu starfsfólki. Við tryggjum með ábyrgum veiðum og vinnslu, þar sem áhersla er á sjálfbærni og nýsköpun, að sjávarútvegur verði áfram burðarstólpi í íslensku samfélagi. Við leitum allra leiða til að lágmarka áhrif starfseminnar á umhverfið hvort sem er á sjó eða í landi.
Fjárhagsdagatal
Annar ársfjórðungur 27. ágúst 2026
Þriðji ársfjórðungur 19. nóvember 2026
Fjórði ársfjórðungur 25. febrúar 2027
Nánari upplýsingar
Nánari upplýsingar veitir Guðmundur Kristjánsson forstjóri, sími 550-1000.