Brim hf. - Fyrirvara um hluthafafund aflétt, kaup á Lýsi hf.
2026-06-24 23:26:26
Brim hf. - Fyrirvara um hluthafafund aflétt, kaup á Lýsi hf.
Brim hf. samdi um kaup á öllum hlutabréfum í Lýsi hf., eins og nánar var tilkynnt um 31. maí 2026. Samkomulagið var gert með fyrirvörum, þar á meðal fyrirvara um hluthafafund kaupanda og fyrirvara um samþykki opinberra eftirlitsaðila. Fyrirvari um hluthafafund kaupanda var háður því að Brim hafi eignast eigin hluti í samræmi við lög og reglur til að mæta skuldbindingum skv. kaupsamningi. Brim hf. hefur eignast eigin hluti til að mæta þessum skuldbindingum og því er fyrirvara um hluthafafund kaupanda aflétt. Öllum fyrirvörum hefur því verið aflétt, öðrum en fyrirvara um samþykki opinberra eftirlitsaðila.