Fredag 14 Augusti | 14:19:45 Europe / Stockholm

Brim hf. - Fyrirvara um fjármögnun aflétt, Polar Seafood Denmark

2026-06-12 16:41:32

Brim hf. - Fyrirvara um fjármögnun aflétt, Polar Seafood Denmark 

Brim hf. samdi um sölu á 50% hlut sínum í danska félaginu Polar Seafood Denmark A/S (PSD), en S-13 Holding ApS dótturfélag Brim hefur haldið á hlut Brims í PSD í Danmörku, eins og nánar var tilkynnt um 31. maí 2026. Samkomulagið var gert með tveimur fyrirvörum, þe. fyrirvara um fjármögnun og fyrirvara um samþykki opinberra eftirlitsaðila

Kaupandinn, Polar Seafood Greenland, hefur upplýst um að fjármögnun kaupanna liggur fyrir og því fyrirvara um fjármögnun aflétt. Eftir stendur hefðbundinn fyrirvari um samþykki opinberra eftirlitsaðila.