Fredag 14 Augusti | 13:15:11 Europe / Stockholm

Brim hf. - Flöggun, eigin bréf undir 5%

2026-08-14 11:03:34

Þann 13. ágúst 2026, var gengið frá uppgjöri á kaupum Brims hf. á Lýsi hf. þar sem hluti kaupverðs var greiddur með afhendingu eigin bréfa í félaginu. Með afhendingunni fór hlutfall eigin bréfa Brims hf. undir 5% af heildarfjölda hluta í félaginu.

Brim hf. átti 120.307.845 eigin hluti (6,15%) fyrir uppgjörið en á að því loknu 2.660.787 eigin hluti (0,14%)

Tilkynning þessi er gerð með vísan til 29. gr. laga nr. 20/2021 um upplýsingaskyldu útgefenda verðbréfa og flöggunarskyldu.

Flöggunartilkynning er í viðhengi.