Tisdag 10 Mars | 21:18:53 Europe / Stockholm

Kalender

Est. tid*
2023-04-18 - Bokslutskommuniké 2022
2023-01-12 - Kvartalsrapport 2022-Q3
2022-10-11 - Kvartalsrapport 2022-Q2
2022-06-30 - Kvartalsrapport 2022-Q1
2022-05-19 - Årsstämma

Beskrivning

LandIsland
ListaMid Cap Iceland
SektorHandel & varor
IndustriDagligvaror
Bera är ett isländskt bryggeri och dryckesbolag. Bolaget producerar, importerar, distribuerar och säljer drycker och livsmedel över hela Island. Utbudet är brett och inkluderar bland annat vin, öl, sprit och alkoholfritt. Produkterna återsäljs även runtom den internationella marknaden. Bolaget grundades år 1913 och har sitt huvudkontor i Reykjavik.

Vem äger bolaget?

All ägardata du vill ha finns i Holdings!

2026-03-10 18:51:38

Óskar Ingi Magnússon hefur verið ráðinn fjármálastjóri Beru hf. Óskar hefur starfað hjá Ölgerðinni í 10 ár og á þeim tíma komið að fjölbreyttum verkefnum, nú síðast í lykilhlutverki á fjármálasviði þar sem hann stýrði bæði hagdeild og stafrænni tækni. Áður starfaði Óskar hjá WOW air sem sérfræðingur í hagdeild, þar sem hann vann að áætlanagerð og greiningum.

Óskar er með M.Sc. gráðu í Management Science and Engineering frá Columbia háskóla í New York og B.Sc.í iðnaðarverkfræði frá Háskóla Íslands.

„Framundan eru spennandi tímar hjá Beru þar sem nýtt leikskipulag greiðir leiðina til sóknar og enn frekari vaxtar. Skipulagið byggir á sterkum grunni sem fyrst og fremst má þakka skýrri stefnu og einstakri menningu. Ég er fullur tilhlökkunar að leggja mitt lóð á vogarskálarnar við að byggja upp áframhaldandi sókn félagsins með öllu því framúrskarandi starfsfólki sem hér starfar,“ segir Óskar Ingi Magnússon, fjármálastjóri Beru.

„Starf fjármálastjóra krefst í auknum mæli þekkingar á tæknilausnum og það er þróun sem mun halda áfram. Ráðning Óskars er mikilvægt skref í átt að skilvirkara og tæknilegra umhverfi sem við viljum skapa innan Beru og dótturfélaga þar sem reynsla hans og þekking á innviðum og rekstri félagsins mun hjálpa okkur að styrkja samstæðuna enn frekar,“ segir Jón Þorsteinn Oddleifsson, forstjóri Beru.