Ásar hf. - Breyting á fjölda eigin hluta félagsins
2026-09-07 10:10:00
Á aðalfundi Ása hf. þann 10. mars 2022 var stjórn félagsins veitt heimild til að samþykkja kaupréttaráætlun byggða á 10. gr. laga nr. 90/2003 um tekjuskatt, og gera kaupréttarsamninga við starfsfólk félagsins um kaup á hlutum í félaginu.
Í kjölfar nýtingar kaupréttar samkvæmt kaupréttaráætluninni voru 18.045.528 hlutir afhentir til 123 starfsmanna þann 4. september 2026, 14.271.936 hlutir á genginu 10,37 og 3.773.592 hlutir á genginu 9,54.
Ásar hf. á eftir afhendingu framangreindra hluta samtals 101.618.958 eigin hluti eða sem nemur 4,23% af útgefnu hlutafé.