Bifogade filer
Beskrivning
Land | Island |
---|---|
Lista | Large Cap Iceland |
Sektor | Hälsovård |
Industri | Medicinteknik |
Í samræmi við starfskjarastefnu sem samþykkt var á aðalfundi Alvotech þann 6. júní 2023 og þar sem nýtt starfsár stjórnar hefst með aðalfundi, voru á aðalfundi félagsins sem haldinn var 25. júní sl. veittir kaupréttir til fjögurra óháðra stjórnarmanna. Hver stjórnarmaður fékk rétt til kaupa á alls 24.784 hlutum í Alvotech.
Kaupréttarsamningunum er ætlað að samtvinna hagsmuni stjórnarmanna og Alvotech til lengri tíma. Skilmálar samninganna eru í samræmi við kaupréttarkerfi félagsins sem staðfest var á aðalfundi 13. júní 2022.
Meginefni kaupréttarsamninganna er eftirfarandi:
- Veittur er kaupréttur á hlutabréfum á viðmiðunarverðinu 9.28 bandaríkjadalir á hlut.*
- Ávinnslutími er þrjú ár frá úthlutun kaupréttanna, þ.e. þriðjungur kaupréttanna virkjast á hverju ári sem liðið er frá úthlutun.
- Rétthafi þarf að sitja í stjórn Alvotech til að geta nýtt kaupréttinn.
Í viðhengi eru tilkynningar sömu fjögurra stjórnarmanna til fjármálaeftirlits Lúxemborgar (CSSF) varðandi afhendingu áunninna hlutabréfaréttinda (e. Restricted Share Units; RSU) sem var áður úthlutað á grundvelli kaupréttarkerfisins.
*Kaupréttargengið er ákvarðað út frá skráðu gengi hlutabréfa Alvotech við opnun Nasdaq markaðarins í Bandaríkjunum þann dag sem kaupréttirnir eru veittir, í þessu tilviki þann 25. júní 2025.
Alvotech, fjárfestatengsl
Benedikt Stefánsson, forstöðumaður
alvotech.ir@alvotech.com