Beskrivning
| Land | Island |
|---|---|
| Lista | Large Cap Iceland |
| Sektor | Hälsovård |
| Industri | Medicinteknik |
Intresserad av bolagets nyckeltal?
Analysera bolaget i Börsdata!
Vem äger bolaget?
All ägardata du vill ha finns i Holdings!
REYKJAVÍK 2. JÚNÍ 2026 – Alvotech tekur þátt í þremur fjárfestaráðstefnum í Bandaríkjunum fyrri hluta júnímánaðar. Þar munu Róbert Wessman, stjórnarformaður Alvotech og Balaji V. Prasad, framkvæmdastjóri stefnumótunar, kynna félagið fyrir fjárfestum og sitja fyrir svörum hjá greinendum.
Dagskrá:
- Alþjóðleg heilbrigðisráðstefna Jefferies í New York: Fimmtudaginn 4. júní nk. kl. 13:20
- Alþjóðleg heilbrigðisráðstefna Goldman Sachs í Miami: Mánudaginn 8. júní nk. kl. 12:40
- Vefráðstefna UBS um samheitalyf og líftæknilyfjahliðstæður: Miðvikudaginn 10. júní nk. kl. 14:30
Hægt verður að hlýða á beint streymi af viðburðunum og að þeim loknum verður hljóðupptaka aðgengileg á vef Alvotech í 90 daga. Nánari upplýsingar eru á síðunni: News and Events – Events and Presentations.
Alvotech, fjárfestatengsl og samskiptasvið
Benedikt Stefánsson, forstöðumaður
alvotech.ir@alvotech.com
Um Alvotech
Alvotech er líftæknifyrirtæki stofnað af Róberti Wessman sem einbeitir sér að þróun og framleiðslu líftæknihliðstæðulyfja fyrir sjúklinga um allan heim. Alvotech stefnir að því að verða leiðandi á sviði líftæknihliðstæðulyfja. Til að tryggja hámarksgæði eru allir þróunar- og framleiðsluþættir í höndum fyrirtækisins. Fimm hliðstæður hafa þegar hlotið markaðsleyfi og eru komnar á markað, hliðstæður við Humira (adalimumab), Stelara (ustekinumab), Simponi (golimumab), Eylea (aflibercept) og Prolia/Xgeva (denosumab). Þá vinnur Alvotech meðal annars að þróun líftæknilyfjahliðstæða sem nýst geta sjúklingum með sjálfsofnæmis-, augn- og öndunarfærasjúkdóma, beinþynningu og krabbamein. Alvotech hefur gert samninga um sölu, markaðssetningu og dreifingu við samstarfsaðila á öllum helstu mörkuðum, í Bandaríkjunum, Evrópu, Japan, Kína, öðrum hlutum Aaíu, Rómönsku Ameríku, Afríku og Mið-Austurlöndum.
Frekari upplýsingar er að finna á vefsíðu Alvotech, á fjárfestasíðu okkar og á almennri vefsíðu félagsins á ensku. Fylgjast má með starfsemi Alvotech á LinkedIn, Facebook, Instagram og YouTube.