Alvotech birtir uppgjör fyrstu níu mánaða ársins 2026 þann 11. nóvember nk.
REYKJAVÍK (28. október 2026) – Alvotech (NASDAQ: ALVO) mun birta uppgjör fyrstu níu mánaða ársins 2026 þann 11. nóvember nk., eftir lokun markaða í Bandaríkjunum. Fundur til kynningar á uppgjörinu verður sendur út í beinu streymi og hefst kl. 12 á hádegi, fimmtudaginn 12., nóvember nk.
- Til að hlusta á streymið, skráið ykkur hér: Skráning fyrir streymi af uppgjörsfundi
- Fyrir þá sem hyggjast beina spurningum til stjórnenda: Skráning fyrir þátttakendur í spurningatíma
Glærur og annað kynningarefni verða aðgengileg á vefsíðu Alvotech https://alvotech.com/is/financials fyrir fundinn.
Nánari upplýsingar
Fjölmiðlatengsl
Benedikt Stefánsson
Sarah MacLeod
alvotech.media@alvotech.com
Fjárfestatengsl
Dr. Balaji V. Prasad (Bandaríkin)
Benedikt Stefánsson (Ísland)
Mikaela Vilchez (Bandaríkin)
alvotech.ir@alvotech.com
Um Alvotech
Alvotech, stofnað af Róberti Wessman, er líftæknifyrirtæki sem einbeitir sér að þróun og framleiðslu líftæknihliðstæðulyfja fyrir sjúklinga um allan heim. Alvotech stefnir að því að verða leiðandi fyrirtæki á sviði líftæknihliðstæðulyfja. Til að tryggja hámarksgæði eru allir þættir í þróun og framleiðslu í höndum fyrirtækisins. Alvotech vinnur að þróun líftæknilyfjahliðstæða sem nýst geta sjúklingum með sjálfsofnæmis-, augn- og öndunarfærasjúkdóma, beinþynningu eða krabbamein. Alvotech hefur gert samninga um sölu, markaðssetningu og dreifingu við samstarfsaðila á öllum helstu mörkuðum, í Bandaríkjunum, Evrópu, Japan, Kína, öðrum hlutum Asíu, Rómönsku Ameríku, Afríku og Mið-Austurlöndum.
Meiri upplýsingar er að finna á vefsíðu félagsins https://alvotech.is. Þá er einnig hægt að fylgjast með félaginu á samfélagsmiðlunum LinkedIn, Facebook, Instagram og YouTube.