Prenumeration
Beskrivning
Land | Island |
---|---|
Lista | First North Iceland |
Sektor | Sällanköp |
Industri | Gaming |
Stjórn Solid Clouds hf. hefur í dag tekið ákvörðun um að virkja rétt til breytiskyldu skuldabréfa sem gefin voru út af félaginu þann 30. janúar 2025, að höfuðstólsfjárhæð 175 milljónir króna.
Samtala höfuðstóls og áfallinna vaxta í fyrrgreindri skuldabréfaútgáfu þann 13. júní 2025 nemur um 184,6 milljónum króna.
Ákvörðunin er tekin í kjölfar þess að félagið lauk nýverið frekari fjármögnun sem nemur rúmlega 300 milljónum króna en með því er skilyrði breytanlegu skuldabréfanna um síðari fjármögnun uppfyllt. Mun félagið senda tilkynningu til allra eigenda breytanlegra skuldabréfa þar sem framangreind nýting á rétti til breytiskyldu er útskýrð nánar.
Afhending nýrra hluta mun fara fram með útgáfu 184.636.986 hluta í Solid Clouds hf. Tók stjórn félagsins jafnframt ákvörðun um hækkun hlutafjár á grundvelli heimildar hluthafafundar til að mæta skuldbindingum samkvæmt skilmálum skuldabréfa- útgáfunnar.
Eftir þessa hækkun verður heildarfjöldi útgefinna hluta í félaginu 717.043.892. Samkvæmt skilmálum skuldabréfanna skal afhending nýrra hluta fara fram eigi síðar en 15 dögum frá því að eigendum skuldabréfa er tilkynnt um að skuldari hafi ákveðið að nýta breytiskyldu.
Solid Clouds hf. hefur samhliða fjármögnun ráðist í hagræðingaraðgerðir og endurskipulagt starfsemi félagsins með það markmiði að forgangsraða markaðsstarfi.