Niðurstöður hluthafafundar Solid Clouds hf. 8. september 2023
2023-09-08 20:10:00
Hluthafafundur Solid Clouds hf. var haldinn föstudaginn 8. september 2023 kl. 16:00 í aðalsal Arion Banka, Borgartúni 19, 105 Reykjavík.
Eftirfarandi eru niðurstöður fundarins:
1. Afturköllun tillögu um að hækka hlutafé
Ákveðið var að afturkalla tillögur stjórnar til hluthafafundar félagsins um að samþykkt verði að hækka hlutafé félagsins um allt að kr. 57.142.857 að nafnverði á genginu 7,0 á hlut, samanber dagskrárliðir 1. a. og 1. b. í fundarboði félagsins dags. 31. ágúst 2023.
2. Önnur mál sem eru löglega borin fram
Fleira var ekki rætt og fundi slitið kl. 16:15.