Bifogade filer
Prenumeration
Beskrivning
Land | Island |
---|---|
Lista | Large Cap Iceland |
Sektor | Finans |
Industri | Storbank |
Íslandsbanki hf. verður með lokað útboð á almennum skuldabréfum (e. senior preferred) þriðjudaginn 21. febrúar 2023.
Boðinn verður út flokkurinn ISB GB 27 1122.
ISB GB 27 1122 er grænn óverðtryggður skuldabréfaflokkur með lokagjalddaga 22. nóvember 2027 og ber fasta árlega 7,70% vexti.
Útboðið er með hollensku fyrirkomulagi þar sem skuldabréfin verða seld á hæstu samþykktu ávöxtunarkröfunni. Bankinn áskilur sér rétt til að samþykkja eða hafna tilboðum að hluta til eða öllu leyti.
Áætlaður uppgjörsdagur viðskipta er 28. febrúar 2023.
Stefnt er að skráningu bréfanna á Nasdaq Iceland þann 28. febrúar 2023 og verða þau gefin út undir European Medium Term Notes (EMTN) útgáfuramma bankans.
Andvirði útgáfunnar mun verða notað til lánveitinga sem uppfylla skilyrði sem sett eru fram í sjálfbærum fjármálaramma Íslandsbanka. Frekari upplýsingar má nálgast á vefsíðu bankans: https://www.islandsbanki.is/is/vara/bankinn/fjarmognun-bankans.
Verðbréfamiðlun Íslandsbanka hefur umsjón með útboðinu. Tilboðum skal skilað á tölvupóstfangið vbm@isb.is fyrir kl. 16:00 þann 21. febrúar 2023.