Íslandsbanki hf.: Útboð á skuldabréfum í íslenskum krónum sem telja til eiginfjárþáttar 2
Íslandsbanki hf. verður með útboð á skuldabréfum sem telja til eiginfjárþáttar 2 (e. Tier 2) fimmtudaginn 17. september 2026.
Boðinn verður út óverðtryggður skuldabréfaflokkur með mánaðarlegum fljótandi vaxtagreiðslum á grundvelli eins-mánaðar REIBOR vaxtagrunni (hér eftir „skuldabréfin“). Lokagjalddagi skuldabréfanna er 24. september 2036 með innköllunarheimild af hálfu útgefanda í september 2031 og á öllum vaxtagjalddögum þar á eftir.
Fyrirkomulag útboðs verður með þeim hætti að öll samþykkt tilboð verða tekin á hæsta samþykkta álagi ofan á eins-mánaðar REIBOR vaxtagrunn.
Íslandsbanki áskilur sér rétt til að samþykkja eða hafna tilboðum að hluta til eða öllu leyti.
Áætlaður uppgjörsdagur viðskipta er 24. september 2026.
Skuldabréfin verða gefin út undir fjögurra milljarða evra Euro Medium Term Notes (EMTN) útgáfuramma Íslandsbanka. Grunnlýsingu útgáfurammans má finna á vefsíðu fjárfestatengsla: https://www.islandsbanki.is/is/vara/bankinn/fjarmognun-bankans.
Stefnt er að töku skuldabréfanna til viðskipta á Nasdaq Iceland þann 24. september 2026.
Verðbréfamiðlun Íslandsbanka hefur umsjón með útboðinu. Tilboðum skal skilað á tölvupóstfangið vbm@isb.is fyrir kl. 16:00 þann 17. september 2026.