Bifogade filer
Prenumeration
Beskrivning
| Land | Island |
|---|---|
| Lista | Large Cap Iceland |
| Sektor | Finans |
| Industri | Storbank |
Vem äger bolaget?
All ägardata du vill ha finns i Holdings!
Íslandsbanki verður með útboð á sértryggðum skuldabréfum þriðjudaginn 14. apríl 2026. Boðinn verður út flokkurinn ISB CBI 32.
Fyrirkomulag útboðsins verður með þeim hætti að öll samþykkt tilboð verða seld á hæstu samþykktu ávöxtunarkröfunni.
Bankinn áskilur sér rétt til að samþykkja eða hafna tilboðum að hluta til eða öllu leyti.
Áætlaður uppgjörsdagur viðskipta er 21. apríl 2026.
Sértryggðu skuldabréfin hafa þegar verið gefin út undir útgáfuramma Íslandsbanka fyrir sértryggð skuldabréf. Grunnlýsingu ásamt viðaukum má finna á vefsíðu fjárfestatengsla: Sértryggð skuldabréf grunnlýsing.
Verðbréfamiðlun Íslandsbanka hefur umsjón með útboðinu. Tilboðum skal skilað á tölvupóstfangið vbm@isb.is fyrir kl. 16:00 þann 14. apríl 2026.