Bifogade filer
Prenumeration
Beskrivning
Land | Island |
---|---|
Lista | Large Cap Iceland |
Sektor | Finans |
Industri | Storbank |
Íslandsbanki hf. verður með lokað útboð á sértryggðum skuldabréfum miðvikudaginn 12. apríl 2023.
Boðnir verða út flokkarnir ISB CBF 27 og ISB CBI 29.
ISB CBI 29 er nýr verðtryggður skuldabréfaflokkur sem ber fasta árlega vexti og fer greiðsla höfuðstóls fram á lokagjalddaga 10. maí 2029.
Í tengslum við útboðið fer fram skiptiútboð þar sem eigendur flokksins ISB CB 23 eiga þess kost að selja bréf í flokknum gegn kaupum á skuldabréfum í ofangreindu útboði. Verð á ISB CB 23 er fyrirfram ákveðið og er hreint verð 99,19.
Bankinn áskilur sér rétt til að samþykkja eða hafna tilboðum að hluta til eða öllu leyti.
Áætlaður uppgjörsdagur viðskipta er 21. apríl 2023.
Verðbréfamiðlun Íslandsbanka hefur umsjón með útboðinu. Tilboðum skal skilað á tölvupóstfangið vbm@isb.is fyrir kl. 16:00 þann 12. apríl 2023.